Innlent

Þrif gatna hafin í Reykjavík

Birgir Olgeirsson skrifar
Fjölförnustu leiðirnar,  allar stofnbrautir og tengigötur, sem og helstu göngu- og hjólastígar eru hreinsaðar fyrst.
Fjölförnustu leiðirnar, allar stofnbrautir og tengigötur, sem og helstu göngu- og hjólastígar eru hreinsaðar fyrst. Vísir/Hanna
Sópun á götum og stígum í Reykjavík hófst í síðustu viku um leið og veður leyfði og var það rúmri viku á undan áætlun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en þar segir að fjölförnustu leiðirnar, allar stofnbrautir og tengigötur, sem og helstu göngu- og hjólastígar verði hreinsaðar fyrst. Þessar meginleiðir liggja þvert um borgarlandið og njóta því forgangs. Í framhaldi verður farið skipulega um hverfin og húsagötur sópaðar og þvegnar.

„Vegna þess að við förum fyrst meginleiðir um borgarlandið þá liggur leið okkar víða við húsagötur. Fólk hefur haft samband þar sem það heldur að við séum að gleyma þeirra götu, en svo er ekki. Við munum sópa og þvo húsagöturnar þegar við höfum þrifið fjölförnustu leiðirnar,“ segir Björn Ingvarsson í tilkynningu um málið en hann fer fyrir þjónustumiðstöð borgarlandsins.

Þegar farið verður í húsagötur verður það tilkynnt sérstaklega með dreifibréfi til íbúa og skilti sett í þær götur sem á að þrífa. Þegar þar að kemur verða bíleigendur beðnir um að færa bíla sína úr stæðum við götuna. Það gildir þó ekki um stæði inn á lóðum því þrif þeirra er í höndum húseigenda.

Á vef Reykjavíkurborgar – reykjavik.is/hreinsun – má sjá verkáætlun vegna hreinsunar. Breytilegt er frá ári til árs í hvaða hverfi er farið fyrst.

Björn biður fólk einnig að athuga að fyrsta sópun í húsagötum er grófsópun. Það þurfi oft að taka mikið upp af götum og stígum, en það fari í síðari yfirferð eða þvotti. Verkið gangi einnig margfalt betur ef íbúar færi bíla sína frá þegar þrifið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×