Innlent

Þriðjungur þeirra sem þurfa stuðningsþjónustu í Reykjavík á biðlista

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
slaug María Friðriksdóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðisflokks í velferðarráði, segir biðlista eftir nauðsynlegri þjónustu óásættanlega langan.
slaug María Friðriksdóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðisflokks í velferðarráði, segir biðlista eftir nauðsynlegri þjónustu óásættanlega langan.
Alls eru 498 á biðlista eftir stuðningsþjónustu í Reykjavík eða 37 fleiri en á síðasta ári. Þá voru ríflega 1.100 sem fengu þjónustuna og því stórt hlutfall þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda á biðlista.

Að sögn ráðgjafa á þjónustumiðstöðvum borgarinnar er stærstur hluti biðlista til kominn vegna skorts á fjármagni, en það kostar um það bil 280 milljónir króna að koma til móts við þjónustuþarfir þeirra sem á listanum eru. Einnig segja ráðgjafar erfitt að ráða starfsmenn til að sinna þjónustunni, sérstaklega sérhæft starfsfólk þar sem launin eru ekki samkeppnishæf hjá borginni. Þetta kemur fram á minnisblaði frá vel­ferðar­sviði Reykjavíkurborgar sem kynnt var á fundi velferðarráðs í vikunni.

Stuðningsþjónustan hefur meðal annars það markmið að koma í veg fyrir félagslega einangrun og bæta samskiptahæfni. Þannig hefur þjónustan forvarnargildi. „Það er samdóma álit þeirra sem starfa við stuðningsþjónustu að þeir sem ekki fá þjónustu í samræmi við þarfir geti frekar þróað með sér auknar þjónustuþarfir eða vandamál síðar,“ segir í minnisblaði velferðarsviðs.

Ilmur Kristjánsdóttir, varaborgarfulltrúi Bjartrar framtíðar, er formaður velferðarráðs.
Áslaug María Friðriksdóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðisflokks í velferðarráði, segir biðlista eftir nauðsynlegri þjónustu óásættanlega langan. Hún lagði til á fundi velferðarráðs að stuðningsþjónustan yrði meðhöndluð eins og önnur lögbundin þjónusta, til dæmis fjárhagsaðstoð og húsaleigubætur, þar sem ekki er leyfilegt að setja fólk á biðlista. Tillagan var felld af meirihlutanum en hann samþykkti að vísa hugmyndinni inn í vinnu vegna fjárhagsáætlunargerðar. Ilmur Kristjánsdóttir, formaður velferðarráðs, segir meirihlutann meðvitaðan um vandann en að það þurfi að eiga við hann í skrefum.

„Við vitum að það er mikil þörf í málaflokknum en þjónustan er flókin og margvísleg. Þannig að kerfið þarf að vera sveigjanlegt og því finnst okkur þjónustan ekki henta sem bundinn liður, enn sem komið er að minnsta kosti. Það þarf að kortleggja þörfina betur. En það þarf að tryggja þessa þjónustu. Það er ljóst,“ segir Ilmur.

Á fundi velferðarráðs lagði Sjálfstæðisflokkurinn einnig til að stuðningsþjónusta yrði boðin út. „Ef borgin getur ekki staðið undir þessum þörfum verðum við að fá einkaaðila í lið með okkur,“ segir Áslaug. „Að sjálfsögðu þurfa slíkir aðilar að uppfylla sömu gæða- og hæfniskröfur og gerðar eru til þjónustunnar hjá Reykjavíkurborg. En getuleysi borgarinnar á ekki að bitna á notendunum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×