Erlent

Þriðji maðurinn ákærður vegna hryðjuverkanna í Brussel

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Belgísk yfirvöld hafa ákært 35 ára karlmann fyrir að hafa tekið þátt í starfsemi hryðjuverkahópa í aðdraganda árásanna í Brussel.
Belgísk yfirvöld hafa ákært 35 ára karlmann fyrir að hafa tekið þátt í starfsemi hryðjuverkahópa í aðdraganda árásanna í Brussel. Nordicphotos/AFP
Belgísk yfirvöld hafa ákært 35 ára gamlan karlmann fyrir þátt sinn í hryðjuverkaárásunum í Brussel. Hann er þriðji maðurinn sem ákærður er vegna árásanna.

Í yfirlýsingu frá lögreglu var maðurinn aðeins nefndir Y.A og var hann ákærður fyrir að taka þátt í starfsemi hryðjuverkahópa.

Tveir aðrir menn, Abderrahmane A. og Rabah M, hafa einnig verið ákærðir vegna sömu saka.

Sá sem er helst grunaður um að vera höfuðpaur árásanna er maður að nafni Reda Kriket sem handtekinn var í París í síðustu viku.

Segir í yfirlýsingu frá saksóknara í París að magn vopna sem fannst á heimili Kriket bendi til þess að hann hafi haft í hyggju að fremja hryðjuverk í náinni framtíð.

Þá er einn maður í haldi lögreglu í Hollandi vegna tengsla við árásirnar. Lögregluyfirvöld víðsvegar um Evrópu starfa nú saman að því að rannsaka hryðjuverkaárásirnar í Brussel og til þess að koma í veg fyrir frekari árásir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×