Handbolti

Þriðja sætið enn möguleiki fyrir Ísland þökk sé Slóvenum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Slóvenum héldu engin bönd í dag.
Slóvenum héldu engin bönd í dag. vísir/epa
Slóvenía vann auðveldan sigur á Makedóníu, 29-22, í B-riðli HM 2017 í handbolta en þessi lið eru með strákunum okkar í íslenska landsliðinu í riðli. Sigur Slóvena var kærkominn fyrir íslensku strákana en hann tryggði Slóvenum enn fremur sæti í 16 liða úrslitum, fyrst allra liða.

Slóvenska liðið sýndi sparihliðarnar í dag og spilaði alveg frábæran handbolta á köflum en það var sex mörkum yfir í hálfleik, 16-10. Hraðinn í sóknarleik Slóvena var alltof mikill fyrir Makedóníumenn og þá fengu Slóvenar mikið af auðveldum mörkum úr hraðaupphlaupum.

Matevz Skok, markvörður Slóveníu, var í miklum ham og varði fjórtán skot en hann var með 45 prósent hlutfallsmarkvörslu. Hann varði tvö af fimm vítum sem hann fékk á sig og skoraði eitt mark yfir allan völlinn.

Gasper Marguc og Marko Bezjak voru markahæstir hjá Slóveníu en þeir skoruðu báðir fjögur mörk úr fjórum skotum. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að Kiril Lazarov var markahæstur hjá Makedóníu með níu mörk en hann þurfti til þess 18 skot.

Slóvenar eru áfram í efsta sæti B-riðilsins með sex stig eða fullt hús eftir þrjá leiki. Spánverjar jafna þá að stigum í kvöld með sigri á Angóla en þessi tvö bestu lið riðilsins mætast í lokaumferðinni. Makedónía féll niður í þriðja sæti á markatölu með tapinu en Makedóníumenn eru með fjögur stig eftir sigra á Túnis og Angóla í fyrstu tveimur leikjunum. Ísland er í fjórða sæti með eitt stig.

Þökk sé þessum sigri Slóveníu er þriðja sætið enn möguleiki fyrir strákana okkar. Ísland getur komist í þrjú stig með sigri á Angóla á morgun og svo verðum við að treysta á að Spánn vinni Makedóníu á miðvikudaginn og Slóvenar taki Túnis á morgun.

Ef þetta allt gengur upp, sem er frekar líklegt, verður staðan þannig að Ísland og Makedónía mætast í úrslitaleik um þriðja sætið í B-riðli á fimmtudagskvöldið. Strákarnir okkar munu mæta í þann leik eftir eins dags hvíld en Makedóníumenn eiga kvöldleik gegn Spáni á miðvikudaginn áður en kemur að leiknum gegn Íslandi um miðjan dag á fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×