Lífið

Þriðja barnið fætt hjá rokkaranum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Rokkarinn Dave Grohl eignaðist nýverið sitt þriðja barn með eiginkonu sinni Jordyn Blum samkvæmt tímaritinu People.

Dave og Jordyn eignuðust stúlku sem hefur hlotið nafnið Ophelia. Fyrir eiga skötuhjúin dæturnar Violet Maye, átta ára, og Harper Willow, fimm ára.

Dave og Jordyn gengu í það heilaga í ágúst árið 2003 en fyrir það var Dave kvæntur ljósmyndaranum Jennifer Youngblood á árunum 1994 til 1997.

Það er því nóg að gera hjá rokkaranum um þessar mundir því nýja plata sveitar hans Foo Fighters, Sonic Highways, kemur út í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×