Sport

Þriðja árið í röð sem áhorfendamet er slegið á bikarúrslitaleik kvenna

Stefán Árni Pálsson skrifar
vísir/anton
Aldrei hafa fleiri áhorfendur mætt á bikarúrslitaleik kvenna en í gær en 2.435 voru á Laugardalsvellinum þegar Stjarnan og Selfoss mættust.

Stjarnan hafði betur 2-1 eftir en liðið skoraði tvö síðustu mörkin á lokamínútum leiksins. Þetta er  þriðja árið í röð sem áhorfendamet er slegið á bikarúrslitaleik kvenna.

Sjá einnig: Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Selfoss 2-1 | Ótrúleg endurkoma Stjörnunnar

Í fyrra þegar þessi lið mættust einnig í bikarúrslitaleiknum mættu 2.011 á leikinn. Þetta er því töluvert aukning. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×