Glamour

Þreytti frumraun sína á hátískuvikunni fyrir Chanel

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Ein heitasta fyrirsætan þessa stundina Kaia Gerber var að sjálfsögðu mætt á pallana í París. Þetta var frumraun Gerber, sem er dóttir ofurfyrirsætunnar Cindy Crawford, á hátískuvikunni og að sjálfsögðu var það fyrir Chanel en hún er í miklu uppáhaldi hjá yfir hönnuðinum Karl Lagerfeld. 

Chanel bauð gestum í blómagarð í þessari hátískusýningu sem tónaði vel við pasteliti sýningarinnar. Ökklastígvél með lágum hæl, kjólar með bróderingum og svo þessi glæsilegi silfursamfestingur. Það væri gaman að sjá hann á rauða dreglinum í bráð. 

Við munum örugglega sjá meira af Kaiu Gerber á næstu vikum þar sem tískuvikurnar eru nú að rúlla af stað. 






×