Handbolti

Þrettán íslensk mörk þegar Löwen vann Ofurbikarinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alexander var markahæstur í liði Löwen með sjö mörk.
Alexander var markahæstur í liði Löwen með sjö mörk. vísir/getty
Alexander Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson fóru mikinn þegar Rhein-Neckar Löwen vann þriggja marka sigur, 27-24, á Magdeburg í þýska Ofurbikarnum í handbolta.

Alexander var markahæstur í þessum árlega leik deildar- og bikarmeistaranna í Þýskalandi. Alexander skoraði sjö mörk úr 11 skotum í leiknum.

Guðjón Valur kom næstur með sex mörk en fimm þeirra komu úr vítum.

Guðjón Valur er að leika í annað sinn með Löwen en hann kom til liðsins frá Barcelona í sumar. Alexander hefur hins vegar verið í herbúðum Löwen frá 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×