Innlent

Þrettán fyrirtæki kostuðu þjóðargjöf og forstjórar sátu veislu drottningar

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir Mette Bock, menntamálaráðherra Dana, bækurnar.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir Mette Bock, menntamálaráðherra Dana, bækurnar. vísir/epa
Þrettán fyrirtæki kostuðu þjóðargjöf Íslendinga til Dana sem Guðni Th. Jóhannesson forseti afhenti í Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn á þriðjudag. Gjöfin, sjö hundruð eintök af nýrri útgáfu Íslendingasagna, mun rata á dönsk bókasöfn.

Fyrirtækin eru HB Grandi, Össur, Icelandair, Marel, Bláa lónið, Brim, Eimskip, Landsvirkjun, Kaupfélag Skagfirðinga, Mjólkursamsalan, Arion banki, Höldur og Pósturinn. Reiddu þau af hendi samtals um tuttugu milljónir til að hægt væri að prenta sérstaka útgáfu bókarinnar með þakkarávarpi til Dana.

Útgefandinn, Jóhann Sigurðsson, segist hafa fengið hugmyndina skömmu eftir að þýðingin var kláruð. Fjöldi norrænna fræðimanna hafi unnið að þýðingunni en Íslendingasögurnar voru þýddar á dönsku, norsku og sænsku. Margrét Þórhildur, drottning Danmerkur, skrifaði formála í bókina. Vegna þessa, og vegna þess að Danir skiluðu íslenskum handritum á síðustu öld, fannst Jóhanni eins og Íslendingar stæðu í þakkarskuld við Dani.

Jóhann Sigurðsson sést hér til hægri með íslenska útgáfu bókarinnar.vísir/stefán
„Ég fór að kanna hvort máttarstólpar í íslensku þjóðfélagi væru sama sinnis. Þá kom í ljós að mönnum þótti þetta frábær hugmynd,“ segir Jóhann sem fékk nokkur fyrirtæki til að styrkja verkefnið.

„Ég er mjög stoltur og ánægður með það að flestir forstjórar þessara fyrirtækja sáu sér fært að fara út og vera viðstaddir þennan viðburð,“ segir Jóhann.

Forstjórar Landsvirkjunar, Ice­landair, Eimskipa, Brims, Össurar, Póstsins, Bláa lónsins og Marel voru einnig viðstaddir veislu drottningarinnar.

„Það þurfti að sérprenta bækurnar með sérstöku þakkarávarpi. Það mun birtast dönskum lesendum næstu áratugina því þetta verður grundvallarútgáfa. Þá munu þeir sjá að Íslendingar hugsa hlýlega til þeirra,“ segir Jóhann en í ávarpinu er tilurð gjafarinnar útskýrð.

Þær tuttugu milljónir sem Jóhann safnaði fóru í prentunina, sendingu á dönsk bókasöfn, viðburðinn sjálfan og eftirfylgni.

„Ég er alveg himinlifandi og sérstaklega þakklátur fyrirtækjunum fyrir að hafa gert þetta að veruleika og fyrir að hafa mætt fyrir hönd þjóðarinnar á þennan viðburð,“ segir Jóhann. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×