Lífið

Þrettán ára Kim Kardashian vissi að hún yrði fræg

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sjónvarpsþátturinn Entertainment Tonight er búinn að grafa upp gamalt myndband af raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian.

Myndbandið er tekið árið 1994, þegar Kim var aðeins þrettán ára gömul. Í myndbandinu fullvissar hún sig um að einhver sé að taka hana upp.

„Ég vona að þið séuð að gera það því þegar þið sjáið mig, þegar ég er orðin fræg og gömul, eigið þið eftir að muna eftir mér sem fallegrar, lítillar stúlku,“ segir Kim í myndbandinu sem fylgir fréttinni.

Þá segist Kim einnig vera svalasta stúlkan í bekknum sínum. Þá segist hún líka vera vinsælli en bekkjarfélagi hennar, Lisa.

„Ég er vinsælli en hún...allir elska mig. Ég er svo vinsæl og allir elska mig.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×