Lífið

Þrettán ára dóttir Catherine Zeta-Jones er nákvæmlega eins og mamma sín

Stefán Árni Pálsson skrifar
Leikarahjónin Catherine Zeta-Jones og Michael Douglas eiga saman Carys Zeta Douglas sem er í dag 13 ára. Einnig eiga þau saman Dylan sem er 16 ára.

Hjónin hafa verið gift í sautján ár og kemur fjölskyldan í heild sinni ekki oft fram opinberlega. Það gerðist síðast í desember þegar hún fór saman á frumsýningu á nýjustu Star Wars-myndinni.

Þá sáu margir hversu ótrúlega líkar þær mæðgur eru en hér að neðan má sjá myndir af þeim báðum sem teknar voru umrætt kvöldi undir lok síðasta árs.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×