Bíó og sjónvarp

Þrestir hittu í mark og hreyfðu við fólki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aðstandendur myndarinnar uppi á sviði að sýningu lokinni.
Aðstandendur myndarinnar uppi á sviði að sýningu lokinni. Vísir/KTD
Lófaklappið var tiltölulega rólegt til að byrja með að lokinni forsýningu Þrasta í Háskólabíó í kvöld. Ekki vegna þess að fólk væri ósátt við kvikmyndina heldur hafði hún hreyft allsvakalega við mörgum. Mátti sjá tár á hvarmi hjá nokkrum, voru sumir aðeins eftir sig en aðrir einfaldlega ánægðir með vel heppnaða mynd. Bekkurinn var nokkuð þétt setinn á Melunum í kvöld..

Þrestir fjallar um Ara, sextán ára pilt, sem er sendur vestur á firði af móður sinni. Þar á hann að búa með föður sínum sem hann hefur ekki séð í heil sex ár. Óhætt er að segja að Ari, sem leikinn er af Atla Óskari Fjalarssyni, upplifi margt á þeim mánuðum sem Þrestir nær yfir.

Rúnar ásamt aðalleikurum myndarinnar, Atla Óskari og Rakel Björk Björnsdóttur, við frumsýningu Þrasta á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto.
Ari hittir æskuvinkonu sína Láru, sem leikin er af Rakel Björk Björnsdóttur, og eiga þau eftir að verða fyrir lífsreynslu sem hreyfir við hverjum þeim gesti sem smellir sér á myndina í bíó. Rúnar Rúnarsson leikstýrir myndinni og fer Ingvar E. Sigurðsson með hlutverk drykkfellds föðurins.

Myndin er að mestu skotin á Flateyri þar sem söguperónurnar búa og er tónlistin í höndum Kjartans Sveinssonar, fyrrum meðlims Sigur Rósar. Aðstandendur myndarinnar voru klappaðir upp á svið að sýningu lokinni og héldu fjölmargir þeirra og gestir í kjölfarið á Hótel Borg til að fagna forsýningunni.

Sýningin í kvöld var hluti af RIFF kvikmyndahátíðinni en Þrestir hlutu verðlaun á San Sebastián kvikmyndahátíðinni á Spáni í síðustu viku. Þrestir er önnur kvikmynd Rúnars í fullri lengd, sú fyrsta var Eldfjall sem var heimsfrumsýnd á Director's Fortnight-hluta Cannes-hátíðarinnar árið 2011.

Að neðan má sjá stiklu úr Þröstum. Einnig má sjá myndir sem Stefán Karlsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, tók af gestum áður en sýningin fór af stað.




Tengdar fréttir

Þrestir heimsfrumsýnd í Toronto í kvöld

Aðstandendur kvikmyndarinnar Þrestir eru lentir í Toronto í Kanada til að vera viðstaddir heimsfrumsýningu á TIFF hátíðinni í kvöld klukkan 21.30 á staðartíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×