Fótbolti

Þrenna hjá Viðari Erni í dag

Viðar Örn Kjartansson fagnar með Vålerenga.
Viðar Örn Kjartansson fagnar með Vålerenga. mynd/valerenga
Framherjinn Viðar Örn Kjartansson heldur áfram að raða inn mörkum fyrir norska liðið Vålerenga.

Selfyssingurinn skoraði þrennu í dag er lið hans vann 5-0 sigur á neðrideildarliðinu Nordstrand í fyrstu umferð norsku bikarkeppninnar.

Eitt marka Viðars kom úr vítaspyrnu. Hann var fyrir búinn að skora fjögur mörk í deildarkeppninni og óhætt að segja að hann sé þegar búinn að slá í gegn hjá sínu nýja félagi.

Það gekk ekki eins vel hjá Hannesi Þór Halldórssyni og félögum hans í Sandnes Ulf en þeir töpuðu óvænt, 1-0, gegn C-deildarliði Sola.

Þórarinn Ingi Valdimarsson og Guðmundur Þórarinsson skoruðu báðir í 11-0 sigri Sarpsborg á nágrönnum sínum í Sarpsborg FK.

Matthías Vilhjálmsson var fyrirliði hjá Start í dag og skoraði eitt mark í 4-0 sigri á Höllen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×