Þrengt að hrefnuveiðimönnum 22. maí 2013 06:00 Hvalur flensaður Hvalveiðar eru nú bannaðar í stærri hluta af Faxaflóa en áður.Fréttablaðið/Vilhelm
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra, gaf í gær út reglugerð þess efnis að griðasvæði hvala í Faxaflóa stækkaði. Reglugerðin tók gildi á miðnætti. „Þetta kemur flatt upp á okkur enda veiðitímabilið nýhafið. Nú er verið að útiloka okkar aðalmið og við þurfum því að endurmeta stöðuna frá grunni,“ segir Gunnar Bergmann Jónsson, talsmaður hrefnuveiðimanna, og bætir við að þetta þýði lengri veiðitúra sem valdi því að fjölga þurfi réttindamönnum um borð sem sé mjög dýrt. Samkvæmt reglugerðinni nær griðasvæðið frá Garðskaga á Reykjanesi að Skógarnesi á Snæfellsnesi en náði áður frá Garðskaga og norður fyrir Akranes. Er breytingin rökstudd þannig að umfang og þjóðhagslegt mikilvægi hvalaskoðunar hafi aukist og mikilvægt sé að umgjörð greinarinnar sé ásættanleg. Griðasvæðið var hins vegar ekki stækkað jafn mikið og nefnd um stefnumörkun í hvalveiðimálum lagði til. Rannveig Grétarsdóttir, formaður Hvalaskoðunarsamtaka Íslands, segir breytinguna skref í rétta átt en gangi þó ekki nægilega langt. „Við viljum að svæðið nái frá því yst á Snæfellsnesi og að Eldey þar sem hvalaskoðun er að byrja á ný í Keflavík.“ Rannveig segir að hrefnuveiðar hafi verið stundaðar í grennd við gamla griðasvæðið og að breyting hafi orðið á hegðun hrefna á svæðinu. „Við sjáum færri dýr í hverri ferð og þau sem við sjáum eru styggari. Það gæti verið vegna veiðanna og þó við getum ekki slegið því föstu þá teljum við áhættuna einfaldlega vera of mikla,“ segir Rannveig.- mþl
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira