Innlent

Þrengslavegi lokað vegna umferðaróhapps

Birgir Olgeirsson skrifar
Er unnið að því að fjarlægja bifreiðina en engan sakaði.
Er unnið að því að fjarlægja bifreiðina en engan sakaði. Loftmyndir ehf.
Lögreglan á Suðurlandi lokaði Þrengslavegi þar sem flutningabifreið þverar veginn við Skógarhlíðabrekku. Er unnið að því að fjarlægja bifreiðina en engan sakaði.

Fjölmargir ökumenn hafa misst bifreiðar sínar út af vegum í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi í morgun og hefur verið tilkynnt um nokkrar bílveltur. Alvarleg slys hafa þó ekki orðið á fólki.

Lögregla beinir þeim tilmælum til fólks að stilla ökuhraða í hóf og huga að dekkjabúnaði bifreiða. Mikið slabb er á vegum og skyggni oft lélegt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×