Innlent

Þremenningarnir sýknaðir eftir að fórnarlömbin drógu framburð sinn til baka

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Mennirnir þrír með verjendum sínum.
Mennirnir þrír með verjendum sínum. vísir/gva
Þrír menn sem sakaðir voru um alvarlega líkamsárás og frelsissviptingu gegn fullorðnu pari við Grímsbæ í Fossvogi árið 2014 voru sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Parið breytti framburði sínum við aðalmeðferð málsins og sagði mennina aldrei hafa veist að þeim, né svipt þau frelsi sínu. 

Tveir mannanna, Alvar Óskarsson og Jónas Árni Lúðvíksson, hafa hlotið þunga dóma. Þeir voru báðir dæmdir fyrir aðild að umfangsmestu fíkniefnamálum sem komið hafa upp hér á landi, í Pólstjörnumálinu annars vegar og Papeyjarmálinu hins vegar. Þeir voru báðir sýknaðir í morgun. Þriðji maðurinn var einnig sýknaður en var sviptur ökuréttindum í eitt ár.

Þremenningarnir voru sakaðir um að hafa veist að fólkinu, konu og karlmanni á fimmtugs- og sextugsaldri, fyrir utan Grímsbæ í Fossvogi árið 2014. Þeir voru sagðir hafa slegið þau ítrekað í andlitið og hert að hálsi konunnar, og svo þvingað þau inn í bíl. Konan var sögð hafa flúið út um glugga bílsins, en að mennirnir hefðu ekið með manninn í Garðabæ þar sem þeir áttu að hafa haldið honum föngnum í allt að fjörutíu mínútur og veist að honum.

Leitaði til lögreglu

Konan leitaði á lögreglustöðina eftir að hafa komist út úr bílnum þar sem hún sagði frá átökum. Sagði hún mennina hafa kýlt sig svo fast að losnað hefði um tennur sínar.

Hún sagðist hins vegar við aðalmeðferð málsins að ekkert af fyrrnefndu hefði gerst og sagðist ekki muna hvernig áverkarnir væru tilkomnir, en að hún hafi verið í mikilli neyslu fíkniefna á þessum tíma. Taldi hún líklegast að hún hefði dottið.

Þá gat hún ekki skýrt af hverju blóð af sambýlismanni hennar fannst á fötum hennar.

Gjörbreyttur framburður beggja

Framburður mannsins fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur var á svipaða leið. Hann sagðist allan tímann hafa verið frjáls ferða sinna og sagðist telja að vitnisburður sinn hjá lögreglu hafi verið rangur.

Vitni í málinu, karlmaður á þrítugsaldri, breytti einnig framburði sínum fyrir dómi. Hann hafði, samkvæmt gögnum málsins, óskað í þrígang eftir aðstoð lögreglu við Grímsbæ þetta kvöld. Hann bar hins vegar við minnisleysi við aðalmeðferð málsins.

Að sögn annars vitnis, starfsmanns á bensínstöð, kom karlmaðurinn þetta kvöld inn á bensínstöðina, alblóðugur og sagðist hafa verið laminn með öxi í höfuðið. Starfsmaðurinn óskaði eftir sjúkrabíl og var maðurinn fluttur á slysadeild. Læknir sem tók á móti manninum sagði fyrir dómi að áverkar mannsins hefðu verið miklir og grófir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×