Innlent

Þrekvirki björgunarmanna í Nesskriðum í nótt: „Auðvelt að stúta sér á þessum slóðum“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Einar Áki Valsson sem stjórnaði björgunaraðgerðum á Tröllaskaga í nótt þar sem erlent par hafði komið sér í sjálfheldu segir að það hafi gengið ágætlega að bjarga fólkinu. Aðstæður voru afar erfiðar en fólkið var fast á lítilli syllu í Nesskriðum við austanverðan Siglufjörð.

Um snarbratt fjalllendi niður í sjó er að ræða og notuðu 40 björgunarsveitarmenn frá Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri báta til að komast að fólkinu. Þá var dróni nýttur til kanna aðstæður í brattri fjallshlíðinni áður en björgunarmenn lögðu af stað upp.

„Sem betur fer var gott veður og gott í sjóinn þannig að við gátum notað báta til að komast í fjöru,“ segir Einar Áki. Tveir björgunarmenn komust að fólkinu ofan frá og voru notaðir spottar til að koma þeim niður. Þau voru ekkert meidd en voru mjög sjokkeruð og þreytt að sögn Einars Áka.

Björgunarsveitarmenn fóru á bátum að fjallshlíðinni.mynd/Haukur Gunnarsson
Haukur Gunnarsson, formaður björgunarsveitarinnar á Dalvík, segir öryggið hafi verið sett á oddinn í björgunaraðgerðunum og að enginn hafi verið í lífshættu. Engu að síður sé hættulegt að labba á þessu svæði og þetta hefði getað farið mjög illa.

„Það er auðvelt að stúta sér á þessum slóðum. En gott samspil öflugra sveita varð til þess að þetta leystist sem betur fer. [...] Við vorum í stöðugu sambandi við fólkið en þau voru köld, blaut og hrædd og lögðu ekki í eitt né neitt,“ segir Haukur.

Hann kveðst ekki vita hvað fólkið hafi verið lengi fast á syllunni áður en það hringdi á aðstoð á tólfta tímanum í gærkvöldi en það hafði verið á göngu síðan klukkan 17 um daginn. Björgunaraðgerðir tóku nokkurn tíma vegna erfiðra aðstæðna en fyrstu menn komust að fólkinu um klukkan tvö um nóttina. Þau voru síðan komin til Siglufjarðar um klukkan fimm í morgun.

Myndbandið hér að neðan var tekið með drónanum í nótt og birt á Facebook-síðu björgunarsveitarinnar á Dalvík í hádeginu. Þá tók Haukur Gunnarsson meðfylgjandi myndir af björgunaraðgerðum í nótt. Í spilaranum hér að ofan má svo hlusta á viðtal við Kjartan Ólafsson formann svæðisstjórnar björgunarsveitanna á Norðausturlandi en rætt var við hann í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Eins og sést er fjallshlíðin þar sem fólkið var komið í sjálfheldu mjög brött og illfær.mynd/haukur gunnarsson
Björgunarsveitarmenn á Dalvík undirbúa sig til að fara af stað.mynd/haukur gunnarsson

Tengdar fréttir

Erfið björgunaraðgerð í Nesskriðum í nótt

30-40 björgunarsveitarmenn frá Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri voru kallaðir út á tólfta tímanum í gærkvöldi til að koma erlendu pari en það hafði komist í sjálfheldu í Nesskriðum við austanverðan Siglufjörð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×