Erlent

Þrefalt fleiri fíklar deyja í Rússlandi

ingvar haraldsson skrifar
Eiturlyfjaneysla Rússa er vandamál.
Eiturlyfjaneysla Rússa er vandamál.
Þrefalt fleiri deyja vegna þess að þeir tóku of stóran skammt af fíkniefnum í Rússlandi nú miðað við árið 2012. The Moscow Times greinir frá.

Allt að hundrað þúsund manns gætu dáið á þessu ári vegna ofneyslu fíkniefna að sögn Olgu Mishina, yfirmanns fíkniefnadeildar rússnesku lögreglunnar.

Olga segir að um átta milljónir Rússa noti eiturlyf og um 250 þúsund glæpir tengdir fíkniefnum séu framdir á ári hverju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×