Fótbolti

Þrefaldir Evrópumeistarar æfðu á Laugardalsvelli | Myndir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Leikmenn Inter skokka á Laugardalsvelli í gær.
Leikmenn Inter skokka á Laugardalsvelli í gær. vísir/andri marinó
Stjarnan mætir þreföldum Evrópumeisturum Inter í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta á Laugardalsvelli klukkan 21.00 í kvöld.

Ítalska stórliðið mætti til landsins um hádegisbilið í gær og æfði á Laugardalsvelli síðdegis. Þar voru mættir menn á borð við NemanjaVidic, fyrrverandi Englands- og Evrópumeistara með Manchester United.

Andri Marinó Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var í Laugardalnum í gærkvöldi og tók myndirnar sem sjá má hér að ofan og neðan.

Leikurinn hefst klukkan 21.00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.

vísir/andri marinó
vísir/andri marinó
vísir/andri marinó
vísir/andri marinó
Nemanja Vidic er mættur til landsins.vísir/andri marinó
Kjartan Sturluson og stórsöngvarinn Gissur Páll Gissurarson fylgdust með æfingunni.vísir/andri marinó

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×