Viðskipti erlent

Þraukar Malaysia Airlines?

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Malaysian Airlines á líklega ekki eftir að tóra út árið 2015 með þessu áframhaldi.
Malaysian Airlines á líklega ekki eftir að tóra út árið 2015 með þessu áframhaldi. Vísir/AFP
Eftir að flugvél Malaysia Airlines, MH17, var skotin niður yfir Úkraínu í gær þar sem 298 manns létu lífið, hafa margir velt fyrir sér framtíð flugfélagsins sem hefur verið nátengt tveimur harmleikum á mjög skömmum tíma.

Fyrirtækið hefur þegar átt erfitt ár í kjölfar brotthvarfs farþegaflugvélarinnar MH370 í mars síðastliðnum. Þá stóð leit að vélinni týndu vikum saman en án nokkurs árangurs. Vélin hefur ekki enn verið fundin. Flugfélagið ásamt malasísku ríkisstjórninni var gagnrýnt harðlega fyrir aðkomu sína að málinu.

Strax eftir að MH17 var skotin niður féll hlutabréfavirði Malaysian Airlines um heil 11 prósent. Þegar á árinu 2014 hefur heildarvirði hlutabréfa flugfélagsins fallið um 35 prósent. Ljóst er að flugfélagið stendur frammi fyrir heljarmiklu tapi af þessum endurteknu óförum flugvéla sinna.

Í grein Guardian um málið segir rekstrargreinandinn Mohsin Aziz, sem sérhæfir sig í flugfélögum, að jafnvel fyrir seinni hörmungarnar hafi honum fundist ólíklegt að félagið yrði enn starfandi seinni hluta ársins 2015.

„Viðskiptavininn langar bara einfaldlega ekki að fljúga með Malaysian Airlines lengur. Það er næstum ómögulegt fyrir flugfélagið að kljást við slíkt gífurlegt ímyndarvandamál," segir Aziz. 


Tengdar fréttir

Farþegi tók mynd af vélinni fyrir flugtak

Hollenskur farþegi sem var um borð í Boeing-777 vél Malaysia Airlines, tók mynd af vélinni áður en hann fór um borð og skrifaði: "Ef hún týnist, lítur hún svona út.“

Pútín og Merkel hvetja til vopnahlés í Úkraínu

Vladimír Pútín Rússlandsforseti hvetur nú bæði úkraínska stjórnarherinn og aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu til að leggja niður vopn og hefja friðarviðræður sem fyrst.

Þjóðerni hluta farþeganna staðfest

Staðfest hefur verið að um borð í Boeing 777 flugvél Malaysia Airlines sem fórst yfir austurhluta Úkraínu í dag voru 154 Hollendingar. Einnig er ljóst að um borð voru 27 Ástralir, 23 Malasar, 11 Indónesar, 6 Bretar, 4 Þjóðverjar, 4 Belgar, 3 Filippseyingar, 1 Kanadamaður.

Þjóðarsorg í Hollandi

Hollendingar eru í áfalli vegna dauða 173 Hollendinga sem fórust þegar MH17 var skotin niður í austurhluta Úkraínu í gær.

Harmleikurinn í Úkraínu

Flugvélin var af gerðinni Boeing 777 á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur þegar hún hvarf af ratsjám. 298 týndu lífi.

Farþegaþota með 295 farþegum innanborðs hrapar í Úkraínu

Boeing-vél malasíska flugfélagsins Malaysian Airlines á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur var skotin niður á landamærum Úkraínu og Rússlands, samkvæmt heimildum Interfax. 295 farþegar voru um borð og eru allir taldir af.

Mesta hörmung í flugsögu Hollands

Forsætisráðherra Úkraínu fullyrðir að rússneskir hryðjuverkamenn hafi skotið farþegaþotu Malaysina flugfélagsins niður. Forsætisráðherra Hollands krefst ítarlegra alþjóðlegrar rannsóknar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×