Erlent

Þóttist vera látin og lifði af

Samúel Karl Ólason skrifar
Nemendur skólans faðmast á minningarathöfn í gær.
Nemendur skólans faðmast á minningarathöfn í gær. Vísir/GETTY
Ung kona lifði af skotárás í háskóla í Oregon af því að hún var útötuð blóði samnemanda síns. Þegar byssumaðurinn kom að henni sagði hann að hún hlyti að vera dáin. Þetta segir faðir stúlkunnar sem segir að árásarmaðurinn hafi tekið nemendur af lífi þar sem þau lágu í blóði sínu.



„Því næst gekk hann yfir Lacey og skaut þann næsta. Ungur maður lét lífið á sorglegum og hræðilegum degi og blóð hans bjargaði lífi dóttur minnar,“ segir faðirinn, Randy Scroggins, um hvernig dóttir hans Lacey komst lífs af þegar Chris Mercer myrti níu manns í háskóla í Oregon í Bandaríkjunum á fimmtudaginn.

Scroggins ræddi atvikið í viðtali við fjölmiðla en á meðan því stóð fékk hann símtal frá móður drengsins sem lá á dóttur hans og bjargaði þannig lífi hennar.

Scroggins lýsti árásinni eins og dóttir hans hafði sagt honum frá henni. Mercer byrjaði á því að skjóta kennarann og sagði nemendum að skríða að miðju kennslustofunnar. Þar skaut hann á þau þar sem þau lágu á gólfinu og síðan á hvert og eitt þeirra.

Faðir Chris Mercer sem heitir Ian Mercer segist ekki hafa vitað til þess að sonur sinn ætti eins margar byssur og raunin var og kallar hann eftir hertri vopnalöggjöf í Bandaríkjunum. Chris Mercer átti fjölda skotvopna sem fundust á heimili hans og á honum eftir að hann framdi sjálfsmorð við Umpqua háskólann.

Ian Mercer ræddi við CNN í gær og sagði hann hug sinn vera með fjölskyldum fórnarlambanna.

„Ég veit að orð mín munu ekki færa fjölskyldurnar saman aftur. Ég veit að það er ekkert sem ég get sagt sem mun breyta því sem gerðist. En ég bið ykkur um að trúa mér, hugur minn er með öllum fjölskyldunum og ég vona að þær komist í gegnum þetta.“

Hann segir son sinn hafa búið hjá móður sinni og að þeir hefðu ekki hist í tvö ár. Ian vildi ekki segja til um hvort að sonur sinn hefði átt við geðræn vandamál að stríða og sagði að það myndi koma í ljós við rannsókn lögreglunnar.


Tengdar fréttir

Skorar á þjóð sína að þrýsta á þingið

Bandaríkjaforseti segist engin völd hafa til að breyta byssulögum. Meðan þing og ríkisstjórar vilji engu breyta megi búast við fleiri skotárásum og fjöldamorðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×