Lífið

Þorvaldur og Hrafntinna glæsileg á rauða dreglinum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Á rauða dreglinum í kvöld.
Á rauða dreglinum í kvöld. vísir/getty
Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir voru vægast sagt glæsileg á rauða dreglinum í London í kvöld við frumsýningu kvikmyndarinnar Dracula Untold.

Í kvikmyndinni fer Þorvaldur, eða Thor eins og hann er kallaður ytra, með hlutverk Bright Eyes, austur-evrópsks manns sem ungur var hnepptur í þrældóm en er nú harðskeyttur morðingi. Samantha Barks, Luke Evans og Dominic Cooper fara með aðalhlutverk myndarinnar en myndin er undir leikstjórn Gary Shore og framleidd af Universal Pictures og Legendary Films.

Þau hjónakorn eignuðust sitt fyrsta barn fyrir rúmu ári síðan en hefur leikarinn þurft að dvelja langdvölum frá mæðgunum því tökur á kvikmyndinni hófust daginn eftir fæðingu dótturinnar. Þorvaldur er fastráðinn við Borgarleikhúsið en hann mun næst stíga á leiksvið í febrúar næstkomandi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×