Bíó og sjónvarp

Þorvaldur á toppnum

Þorvaldur Davíð í hlutverki sínu ásamt leikurunum Joseph Long og Luke Evans.
Þorvaldur Davíð í hlutverki sínu ásamt leikurunum Joseph Long og Luke Evans.
Kvikmyndin Dracula Untold var á toppnum yfir þær myndir sem þénuðu mest á heimsvísu um helgina. Þetta kemur fram í frétt á vef Variety.

Vestanhafs var hún á toppnum yfir þær myndir sem þénuðu mest á fimmtudag og föstudag í síðustu viku. Gone Girl, sem frumsýnd var vikuna á undan, toppaði þó Dracula yfir helgina en þetta er önnur helgin sem hún heldur toppsætinu.

Þorvaldur Davíð Kristjánsson fer með aukahlutverk í Dracula Untold þar sem hann leikur grimma leigumorðingjann Bright Eyes. Myndin hefur fengið misjafna dóma en virðist allavega leggjast vel í bíógesti út um allan heim.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×