Innlent

Þórunn fundin heil á húfi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þórunn Bjarnadóttir.
Þórunn Bjarnadóttir.
Uppfært klukkan 18.46 - Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er Þórunn fundin heil á höldnu. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Þórunni Bjarnadóttur sem fædd er 1925. Þórunn fór frá dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í dag um kl 14:30.

Þórunn er um það bil 160 sm á hæð með hvítt stutt klippt hár. Hún er klædd í rauðleita yfirhöfn og með hvíta prjónahúfu á höfði. Ekki er vitað um hvernig buxum hún var í. Þórunn er heilabiluð og því mjög illa áttuð.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um Þórunni er bent á að hafa samband við lögregluna á Höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×