Lífið

Þórunn Antonía um eineltið: „Ég er greinilega bara afskaplega viðkvæm og húmorslaus að finnast það ekki fyndið“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þórunn Antonía hefur ekki húmor fyrir Bubba
Þórunn Antonía hefur ekki húmor fyrir Bubba Vísir/Anton
Þórunn Antonía Magnúsdóttir gefur ekki mikið fyrir afsökunarbeiðni Bubba Morthens sem hann birti á Facebook í dag. Tilefnið var viðtal við Þórunni þar sem hún greindi frá því að hún hefði orðið fyrir einelti þegar hún vann við gerð þáttanna Ísland got talent á sínum tíma.

Þar sat hún í dómarasæti ásamt Bubba sem gekkst við því í dag að hafa í tvígang gert henni lífið leitt með óviðeigandi athugasemdum sem sagðar voru við aðstæður þar sem fólk var „að hlæja og fíflast,“ eins og hann orðaði það.

Sjá einnig: Það var Bubbi sem lagði Þórunni Antoníu í einelti

Önnur athugasemdin var á þá leið að „skemmtiiðnaðurinn væri ekki hrifin að hafa ófrískar konur á skjánum,“ og sárnaði Þórunni það mjög enda þunguð á þeim tíma.

Segir Bubba hafa grínast með átraskanir

„Ég er greinilega bara afskaplega viðkvæm og húmorslaus að finnast það ekki fyndið,“ segir Þórunn Antonía á Facebook í dag. „Svo fannst mér heldur ekki fyndið að láta kast í mig súkkulaðimolum þegar ég var að gera mig fína í öllu hvítu fyrir beina útsendingu í sjónvarpinu fyrir framan alþjóð,“ bætir hún við og vísar þar til hins atviksins sem hún sagði frá í viðtalinu við Fréttablaðið í morgun – án þess þó að nafngreina þann sem átti í hlut.

Þá segir hún einnig að Bubbi hafi gantast með átraskanir er hann sagði við sig að þær væru „allar eins þessar stelpur sem ældum upp öllu sem við borðuðum.“

Þórunn finnst að Bubbi ætti að skammast sín. „Þegar einhver heldur áfram að stríða eftir að maður hefur sett mörk og ég sagði í einlægni að mér sárnaði þessi hegðun, það er ekkert annað en einelti.“

Sjá einnig viðtalið við Þórunni Antoníu: Mér fannst ég einskis virði

„Þú stendur uppi á sviði og syngur um jafnrétti umvafinn konum sem er flott. En kannski hefðir þú átt að sýna mér, konunni sem leit upp til þín og taldi þig vin, smá virðingu og vinsemd. Ég fyrirgef þér en þetta eru allt orð sem þú sagðir en ekki ég og mér sárnaði. Lengi hef ég beðið eftir alvöru afsökunarbeiðni frá þér, kæri gullsmiður orða.“


Tengdar fréttir

Mér fannst ég einskis virði

Þórunn Antonía Magnúsdóttir leggur sig fram við að fletta ofan af glansmyndunum, sem kaffæra samfélagið, á síðunni Góða systir. Henni finnst siðferðisleg skylda sín að tala um sligandi þunglyndið, óvæntan atvinnumissinn á meðgöng






Fleiri fréttir

Sjá meira


×