Lífið

Þórunn Antonía kynnir skothelt japanskt fegurðarráð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þórunn Antonía lagði sig alla fram.
Þórunn Antonía lagði sig alla fram. vísir
Ósk Gunnarsdóttir, Sigrún Sig og Þórunn Antonía er konurnar á bakvið þáttinn Þrjár í fötu sem er á dagskrá FM957 á sunnudagskvöldum.

Í gærkvöldi fóru þær stöllur í gegnum góð förðunartrix sem er vikulegur dagskráliður í þættinum. Það hefur verið mjög mikið í tísku að undanförnu að lýsa og skyggja andlitið og var farið í gegnum nokkur skemmtileg brögð í förðunarheiminum í þættinum í gær.

Stelpurnar eru nokkuð virkar á Snapchat og helda þær úti reikningnum thrjarifotu. Í gærkvöldi tóku þær Þórunni Antoníu í meðferð með barnapúðri, vatni og meiki.

Aðferð sem er þekkt í Japan og víðar í Asíu. Þórunn þurfti meðal annars að setja andlitið ofan í fulla skál af vatni í þrjátíu sekúndur. Hér að neðan má sjá hvernig þetta trix er framkvæmt og einnig hlusta á umræðuna sem þær áttu um málið í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×