Þörungar geta leyst af innflutt eldsneyti 3. apríl 2012 08:00 Vaxtarhraði og nálægð við vinnslu segir Ásbjörn gera þörunga mun álitlegri kost við framleiðslu á lífeldsneyti en ræktun í landi. Fréttablaðið/GVA
Lífeldsneyti má framleiða úr þörungum í slíku magni að komi í staðinn fyrir innflutt eldsneyti. Orkusparandi ljósdíóðutækni og aðgangur að jarðhita gera aðstæður hér til framleiðslunnar einstakar. Hægt væri að flytja út lífeldsneyti. Sérstakar aðstæður hér á landi gætu gert hagkvæma framleiðslu lífeldsneytis úr stórþörungum, eða þangi. Að sögn Ásbjörns Torfasonar, framkvæmdastjóra Vistvænnar orku ehf. gæti eldsneyti sem framleitt væri með þessum hætti komið í stað alls innflutts eldsneytis og er því eftir nokkru að slægjast. „Ísland gæti meira að segja komist í þá stöðu að flytja út eldsneyti sem framleitt væri hér innanlands,“ segir hann. Fyrirtækið hyggur á sýnatöku í sumar þar sem leitað verður að hentugum svæðum til þörungaræktunarinnar. „Við auglýstum eftir líffræðingum í þessa vinnu og höfum fengið margar góðar umsóknir frá mjög hæfu fólki,“ segir Ásbjörn. Í framhaldinu væri svo hægt að hefja tilraunaræktun á hafi úti á völdum stöðum á landinu. Erlendis eru hafnar tilraunir með vinnslu á lífeldsneyti úr þörungum, svo sem hjá fyrirtækjum á borð við Statoil, DuPont og Novozymes. Skortur á hentugum svæðum hamlar hins vegar ræktun og nýtingu ytra, sem og aðgangur að orkukostum til eftirvinnslu þar sem hitaskiljun yrði notuð til að vinna lífeldsneyti úr þörungunum. Hér segir Ásbjörn ýmsa ákjósanlega staði þar sem setja mætti upp verksmiðju í nágrenni þörungaræktunarinnar. Til dæmis mætti horfa til jarðvarmavirkjana á Reykjanesi, sem og á Norðurlandi, á Þeistareykjum og við Kröflu. Vænlegasta kostinn telur Ásbjörn að tengja framleiðsluna við þann mikla hita sem fá mætti með djúpborunarverkefnum, en einnig væri hægt að nýta fyrirliggjandi aðstöðu til framleiðslu við lægra hitastig. Úr þaranum er hægt að framleiða nokkrar tegundir af eldsneyti, svo sem lífgas, bioetanól og svo biobutanól sem sé mjög líkt bensíni. Síðan megi líka hafa not af hliðarafurðum framleiðslunnar og nota til dæmis í dýrafóður eða sem áburð. Vistvæn orka hefur náð árangri með þróun á ljósdíóðutækni sem notuð er við lýsingu í gróðurhúsum við margvíslega ræktun. Með tækninni hefur verið hægt að draga verulega úr orkunotkun við ræktunina, eða um helming eða meira miðað við hefðbundna lampa sem notaðir eru við ræktunina. Þessa tækni segir Ásbjörn svo lykilinn að árangri sem ná megi í þörungaræktun. „Hún er þessi litla þúfa sem veltir þessu þunga hlassi,“ en tilraunir fyrirtækisins við þararæktun hófust þegar erlent stórfyrirtæki í fiskeldi leitaði til Vistvænnar orku um lýsingu fyrir ungplöntur. Hér heima hefur fyrirtækið þegar, í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Atvinnuþróunarfélag Norðurlands, hafið tilraunir með ræktun á Reykjum í Ölfusi í gróðurhúsi Landbúnaðarháskóla Íslands. „Á því stigi framleiðum við ungplöntur,“ segir Ásbjörn, en þegar þær hafa náð þeirri stærð að þær þola flutning þá eru plönturnar fluttar í sjó þar sem þær fá bæði næringu og sólarljós. Með þeirri tækni sem Vistvæn orka hefur þróað við framleiðslu á ungplöntunum er hægt að framleiða mjög mikið magn af þörungum og tryggja þannig þá magnuppskeru sem þarf úr sjó til að standa undir framleiðslunni. Miðað við það magn af eldsneyti sem flutt var til landsins árið 2011 segir Ásbjörn að miðað við norska útreikninga þyrfti tvær milljónir tonna af lífmassa til að framleiða samsvarandi magn af lífeldsneyti. „En það er algjörlega raunhæft að rækta þetta í þessu magni,“ segir hann og vísar til þess að erlendis sé þegar í gangi stórfelld stórþörungaframleiðsla, bæði til framleiðslu á lífgasi og svo jafnvel til manneldis líka. „Í tilraun í Noregi voru menn að fá svona 40 til 50 tonn af þurrvigt úr hverjum hektara.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Fleiri fréttir Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Sjá meira