Íslenski boltinn

Þorsteinn: Deildin er ekki í neinu stórtapi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þorsteinn Magnússon.
Þorsteinn Magnússon. vísir/stefán
Knattspyrnudeild Keflavíkur ætlar að senda öllum íbúum Reykjanesbæjar yfir 18 ára aldri valgreiðslu upp á 3.000 krónur til þess að styðja við rekstur deildarinnar.

„Nei, það er langt í frá að við séum gjaldþrota," segir Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, spurður hvort ástæðan fyrir nýrri söfnun knattspyrnudeildar sé sú að deildin sé í vondum málum. „Við erum líka að sækjast eftir meðlimum í knattspyrnudeildina sem og að biðja um pening."

Keflavík situr á botni Pepsi-deildar karla, hefur rekið eitt þjálfarateymi og sjö erlendir leikmenn hafa komið inn í leikmannahópinn en tveir farið til baka.

„Við erum búnir að fara í kostnaðarsamar aðgerðir í sumar og vantar smá stuðning við þær."

Formaðurinn viðurkennir að deildin hafi farið fram úr fjárhagsáætlunum í sumar.

„Við höfum ekki farið langt fram úr okkur," segir Þorsteinn sem ritaði grein á heimasíðu Víkurfrétta undir fyrirsögninni „Oft er þörf en nú er nauðsyn!" Samkvæmt hans orðum er neyðin nú ekki mikil.

„Við erum ekkert í neinu stórtapi. Deildin er þokkalega rekin og litlar skuldir á henni. Við erum bara að reyna að standa í skilum við það sem við höfum lofað og afmarka tap í lokin."

Sjá einnig: Keflavík vill fá pening frá bæjarbúum

Þetta er í annað sinn sem knattspyrnudeildin fer þessa óvenjulega fjáröflunarleið en það gerði hún einnig árið 2008.

„Það gekk bara nokkuð vel. Það var fullt af fólki sem borgaði þá og sýndi stuðning við félagið sitt," segir Þorsteinn en ef hann fengi engan stuðning hvað kæmi deildin þá út í miklum mínus í lok sumars?

„Ég er ekki farinn að taka það saman en það er ekkert stórt. Við þurfum ekkert mikla aðstoð," segir Þorsteinn en af hverju skrifar hann þá að oft hafi verið þörf en nú sé nauðsyn?

„Það er alltaf nauðsynlegt að fá smá aðstoð. Ég vildi ekki meina að það væri nauðsyn þannig. Þetta var bara sett upp svona svo það myndi grípa fólk."

Þorsteinn segir einnig að félagið sé enn á höttunum eftir leikmönnum og sagði að nú væri í skoðun að taka nýjan markvörð þar sem Richard Arends væri farinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×