Íslenski boltinn

Þórsarar á leið til Grindavíkur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jóhann Helgi hefur leikið með Þór allan sinn feril.
Jóhann Helgi hefur leikið með Þór allan sinn feril. vísir/andri marinó
Jóhann Helgi Hannesson og Orri Freyr Gíslason eru á leið til Grindavíkur frá Þór. Fótbolti.net greinir frá.

Jóhann Helgi, sem er 27 ára framherji, hefur leikið með Þór allan sinn feril. Hann skoraði sex mörk í 20 leikjum í Inkasso-deildinni á síðasta tímabili.

Orri Freyr þekkir vel til í Grindavík en hann lék með liðinu á árunum 2004-11. Hann spilaði svo í þrjú ár með Þór og tvö ár með Magna á Grenivík. Orri Freyr gekk svo aftur í raðir Þórs fyrir síðasta tímabil.

Orri Freyr, sem er 37 ára, verður í þjálfarateymi Óla Stefáns Flóventssonar auk þess að leika með Grindavíkurliðinu.

Grindavík endaði í 5. sæti Pepsi-deildarinnar á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×