Íslenski boltinn

Þorri Geir: Verð líklega áfram hjá Stjörnunni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þorri Geir kom sterkur inn í stjörnuliðið í sumar.
Þorri Geir kom sterkur inn í stjörnuliðið í sumar. vísir/stefán
Þorri Geir Rúnarsson gleymir nýliðnu tímabili eflaust seint. Þessi 19 ára Garðbæingur átti aðeins einn leik að baki í Pepsi-deildinni fyrir þetta tímabil.

Hann endaði þetta tímabil hins vegar sem fastamaður í taplausu Íslandsmeistaraliði, auk þess sem hann lék sinn fyrsta landsleik á þriðjudaginn, þegar íslenska U-21 árs landsliðið gerði 1-1 jafntefli gegn Danmörku í seinni leik liðanna í umspili um sæti á EM.

Þorri var að vonum ánægður með fyrsta landsleikinn, þótt hann hefði viljað fá betri úrslit, en Danir fóru áfram á marki skoruðu á útivelli: „Það var gríðarlega svekkjandi að fá þetta mark á sig undir lokin, en ég var mjög sáttur með að við höfðum náð að skora og setja smá pressu á þá,“ sagði Þorri sem sagði að það hefði verið auðvelt að koma inn í landsliðshópinn, þar sem hann stefnir á að vera á næstu árum.

Þorri spilaði nokkra leiki með Stjörnunni fyrra hluta sumars, en eftir að fyrirliðinn Michael Præst meiddist í Evrópuleik gegn Lech Poznan var honum hent út í djúpu laugina. Þorri tók stöðu Danans á miðjunni og spilaði hverja einustu mínútu í Pepsi-deildinni eftir að Præst meiddist. Hann er ánægður með hvernig til tókst.

„Þetta gekk vonum framar og ég var virkilega ánægður með frammistöðuna. Og tímabilið endaði svo með Íslandsmeistaratitli sem við Stjörnumenn erum enn í skýjunum með,“ sagði Þorri sem varð einnig Íslandsmeistari með öðrum flokki í sumar, annað árið í röð. En varla bjóst hann við því að vera fastamaður í liði Stjörnunnar í sumar, og hvað þá Íslandsmeistari að því loknu?

„Nei, alls ekki. Ég bjóst ekki við því að vera byrjunarliðsmaður, þótt ég gerði mér vonir um það. En síðan kom þetta upp á með Præst og það kom bara maður í manns stað,“ sagði Þorri sem sagðist hafa fundið fyrir miklu trausti hjá þjálfaraliði Stjörnunnar.

Þorri segir það hafa verið mikla upplifun að spila úrslitaleikinn gegn FH 4. október, þar sem Stjarnan tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn: „Það var þvílíkt umfang í kringum leikinn, fullt af áhorfendum og mikil stemning. Og við misstum aldrei trúna þrátt fyrir erfiða stöðu,“ sagði Þorri, sem stefnir að því að festa sig enn frekar í sessi á næsta tímabili.

„Ég verð að öllum líkindum áfram hjá Stjörnunni og er mjög ánægður þar. Ég stefni bara að því að halda sæti mínu í byrjunarliðinu,“ sagði Þorri að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×