Handbolti

Þórir og norsku stelpurnar unnu bronsið á sannfærandi hátt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórir Hergeirsson fagnar bronsinu.
Þórir Hergeirsson fagnar bronsinu. Vísir/Anton
Norska kvennalandsliðið í handbolta kemur heim með verðlaun frá Ólympíuleikunum í Ríó en liðið tryggði sér bronsverðlaun með sannfærandi tíu marka sigri á Hollandi í leiknum um þriðja sætið. Þetta eru áttu verðlaun liðsins undir stjórn Íslendingsins Þóris Hergeirssonar.

Þetta eru þriðju Ólympíuleikarnir í röð sem Noregur vinnur verðlaun en liðið hafði tekið gullið á tveimur síðustu ólympíuleikum. Bæði liðin höfðu tapað með minnsta mun í undanúrslitaleikjum sínum fyrir Frakklandi og Rússlandi sem spila um gullið á eftir.

Noregur vann leikinn 36-26 eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 19-13, og ná níu marka forystu í báðum hálfleikjunum. Sigurinn var því mjög sannfærandi og öruggur.

Nora Mörk var enn á ný markahæst hjá norska liðinu en hún skoraði 7 mörk í þessum leik. Amanda Kurtovic og Stine Bredal Oftedal skoruðu báðar sex mörk og Veronica Kristiansen var með fimm mörk þar af þrjú þeirra í byrjun seinni hálfleiks.

Camilla Herrem sem klúðraði dauðafærin í lok framlengingarinnar í undanúrslitunum var með 4 mörk og 6 stolna bolta í leiknum. Heidi Löke skoraði líka fjögur mörk.

Norska liðið hafði unnið þrjá örugga sigra á hollenska liðinu á undanförnum stórmótum þar á meðal átta marka sigur í úrslitaleik HM í fyrra. Það var eiginlega greinilegt frá byrjun að trúin á sigur var ekki mikil innan hollenska liðsins. Norska liðið ætlaði aftur á móti að bæta fyrir sárt tap í framlengdum undanúrslitaleik á móti Rússum.

Norska liðið byrjaði leikinn líka á full gasi, komst í 7-2, 10-3 og náði mest níu marka forystu (14-5, 16-7 og 17-8) um miðjan hálfleikinn. Hollenska liðið náði að minnka muninn niður í sex mörk fyrir hálfleik en Noregur leiddi þá 19-13.

Norsku stelpurnar unnu fyrstu sex mínútur seinni hálfleiksins 4-1 og náðu þar með aftur níu marka forystu, 23-14. Hollenska minnkaði muninn reyndar fljótlega niður í sex mörk en þær norsku hleyptu þeim ekki lengra í bili. Munurinn fór reyndar niður í fimm mörk á síðustu tíu mínútunum en sigurinn var aldrei í hættu hjá norsku stelpunum sem komu muninum aftur upp í tíu mörk fyrir lokaflautið.

Þórir Hergeirsson hefur nú stýrt norska liðinu á níu stórmótum og unnið verðlaun á átta þeirra eða fimm gull, eitt silfur og tvö brons. Liðið er ríkjandi heims og Evrópumeistari og framundan er titilvörn á EM í Svíþjóð í desember.


Tengdar fréttir

Ekki uppskrift íslenska þjálfarans

Þórir Hergeirsson segir að það sé ekki einhver taktík að tapa fyrsta leik á stórmóti því norsku stelpurnar hafa svo oft byrjað illa en endað mjög vel á þessum stóru mótum kvennahandboltans. Það gerðist á leiðinni að Ólympíugullinu fyrir fjórum árum og aftur um helgina í fyrsta leik á Ólympíuleikunum í Ríó.

Þórir eftir tapið: Mótlætið gerir okkur bara sterkari

Þórir Hergeirsson tapaði sínum fyrsta undanúrslitaleik í sjö ár þegar norska kvennalandsliðið tapaði í nótt í framlengdum leik á móti Rússlandi í undanúrslitum á Ólympíuleikunum í Ríó.

Stelpurnar hans Þóris sýndu enga miskunn

Norska kvennalandsliðið í handbolta, sem Þórir Hergeirsson þjálfar, tryggði sér sæti í undanúrslitum Ólympíuleikanna í Ríó með risasigri, 33-20, á Svíum í kvöld.

Hrósa Þóri fyrir góðan húmor

Norska kvennalandsliðið í handbolta er komið í undanúrslit á Ólympíuleikunum í Ríó en liðið leikur undir stjórn Íslendingsins Þóris Hergeirssonar eins og undanfarin sjö ár. Fréttablaðið fékk að vita meira um þjálfarann Þóri hjá tveimur lykilleikmönnum norska liðsins, þeim Heidi Löke og Stine Oftedal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×