Handbolti

Þórir og félagar í undanúrslit

Þórir í leik með Kielce.
Þórir í leik með Kielce.
Lið Þóris Ólafssonar, Kielce, komst í undanúrslit pólsku deildarinnar í kvöld eftir framlengdan hörkuleik gegn Kwidzyn.

Ekki var nú fyrirfram búist við mikilli mótspyrnu frá Kwidzyn en annað kom á daginn. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 35-35 og því varð að framlengja.

Kielce leiddi 38-36 eftir fyrri hálfleik framlengingar og vann að lokum sigur, 41-39. Kielce vann einvígi liðanna, 2-0.

Þórir skoraði þrjú mörk í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×