Handbolti

Þórir Hergeirsson tilnefndur sem þjálfari ársins

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Þórir Hergeirsson er sigurstranglegur
Þórir Hergeirsson er sigurstranglegur vísir/pjetur
Þórir Hergeirsson þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta sem varð Evrópumeistari á dögunum er einn fimm þjálfara sem er tilnefndur sem þjálfari ársins 2014 í kvennahandbolta.

Það er heimasíðan Planet Handball sem stendur fyrir kjörinu en hægt er að kjósa hér.

Þórir var kjörinn þjálfari ársins árið 2011 og getur nú endurtekið leikinn en hann er einn fimm þjálfara sem eru tilnefndir.

Þessir eru tilnefndir:

Dragan Adzic, Svartfjallalandi og Buducnost

Jorge Duenas, Spáni

Þórir Hergeirsson, Noregi

Ambros Martin, Györ (Ungverjalandi)

Helle Thomsen, Svíþjóð og Midtjyllandh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×