Innlent

Þorgrímur hættur við forsetaframboð

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
"Þar fyrir utan er galið að næsti forseti þjóðarinnar verði hugsanlega kosinn með innan við 15 prósent atkvæða. Því þarf að breyta.“
"Þar fyrir utan er galið að næsti forseti þjóðarinnar verði hugsanlega kosinn með innan við 15 prósent atkvæða. Því þarf að breyta.“
„Á síðustu vikum hefur áhuginn á embættinu fjarað út, af margvíslegum ástæðum, en í júní næstkomandi langar mig fyrst og fremst að leggja mitt af mörkum til að Ísland standi sig frábærlega á EM í Frakklandi,“ segir Þorgrímur Þráinsson rithöfundur í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag, en þar staðfestir hann að hann sé hættur við forsetaframboð.

Greint var frá því í nóvember að Þorgrímur hygðist fara í framboð. Nú hins vegar segist hann vilja einbeita sér að því að skrifa barnabækur og gera sitt besta til að hreyfa við þúsundum ungmenna, líkt og hann orðar það.

„Brátt eru liðnir fimm mánuðir frá því ég var spurður, algjörlega óvænt, hvort ég hefði hugsað mér að sækjast eftir því að verða næsti forseti Íslands. Af heiðarleika og hreinskilni svaraði ég játandi,“ segir Þorgrímur.

Galið að forsetinn verði kosinn með 15 prósent atkvæða

Þorgrímur lýsir í grein sinni ákveðnum skoðunum sínum á forsetaembættinu og hvernig forsetinn eigi að starfa. Hann segist hafa fullan skilning á því að fólk eigi almennt erfitt með að sjá einhvern feta í fótspor Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta Íslands. Afstaða fólks til embættisins hafi mótast á þeim 20 árum sem Ólafur hefur setið í embættinu og að umræðan muni því án efa litast af því hvaða sýn menn hafi á störf núverandi forseta.  

Þá segist Þorgrímur þeirrar skoðunar að forseti Íslands eigi að hafa sem minnst pólitísk afskipti, nema þau sem stjórnarskráin kveður á um, og að málskotsrétturinn eigi fyrst og fremst að vera í höndum fólksins í landinu.

„Þar fyrir utan er galið að næsti forseti þjóðarinnar verði hugsanlega kosinn með innan við 15 prósent atkvæða. Því þarf að breyta.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×