Fótbolti

Þorgrímur: Ódrengileg gagnrýni á landsliðsmenn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þorgrímur Þráinsson.
Þorgrímur Þráinsson. Vísir/Anton
Þorgrímur Þráinsson, meðlimur í landsliðsnefnd karla hjá KSÍ, ritar í kvöld áhugaverðan pistil sem birtist á vefsíðu Fótbolti.net.

„Í ljósi góðs árangurs landsliðsins í knattspyrnu hafa leikmenn verið töluvert í sviðsljósinu, sem eðlilegt er. Fjölmiðlamenn hafa spurt um ástæður þessa góða árangurs og einstaka leikmaður hefur fallið í þann djúpa pytt að kasta rýrð á fyrrum þjálfara liðsins, Ólaf Jóhannesson og Pétur Pétursson, meðvitað eða ómeðvitað, líklega til þess að koma einhverjum samanburði á framfæri,“ skrifar Þorgrímur.

Á föstudag birtist viðtal í sænskum fjölmiðlum við þá Arnór Smárason og Guðlaug Victor Pálsson þar sem þeir greindu frá því hvernig andrúmsloftið var í íslenska landsliðinu áður en Lars Lagerbäck tók við því fyrir þremur árum síðan, líkt og lesa má um hér fyrir neðan.

„Og fjölmiðli er nokk sama þótt leikmenn missi eitthvað óheppilegt út úr sér því það getur orðið að krassandi fyrirsögn,“ skrifar Þorgrímur enn fremur.

Hann kemur þeim Ólafi og Pétri til varnar og segir þá hafa unnið gott verk. Til að mynda hafi þeir gefið bestu leikmönnum Íslands í dag sitt fyrsta tækifæri með landsliðinu.

„Hafi einhverjir leikmenn undir stjórn Ólafs og Péturs komið heim í landsleiki með það að markmiði að fara á pöbbinn að leik loknum, eða eingöngu til að „hitta strákana“ sýnir það algjörlega þeirra hugarfar, ekki þjálfaranna. Að væna aðra leikmenn um að hafa þetta undarlega hugarfar að leiðarljósi, að gefa sig ekki í landsliðsverkefni, er ódrengilegt,“ skrifar Þorgrímur en pistilinn má lesa í heild sinni hér.

Að lokum segir hann að menn uppskeri eins og þeir sái. „Og þess vegna eiga menn að sýna hógværð og auðmýkt, setja undir sig hausinn og vinna sig inn í liðið að nýju en spara stóru orðin.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×