Innlent

Þorgerður Katrín situr fyrir svörum í Kosningaspjalli Vísis

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Umsjónamenn þáttarins eru Stefán Óli Jónsson og Sunna Karen Sigurþórsdóttir.
Umsjónamenn þáttarins eru Stefán Óli Jónsson og Sunna Karen Sigurþórsdóttir. vísir/stefán
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, oddviti Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, situr fyrir svörum í Kosningaspjalli Vísis sem hefst klukkan 13.30 í dag.

Þátturinn verður í beinni útsendingu hér á vefnum sem og á Facebook-síðu Vísis en þar geta áhorfendur sent inn spurningar til Þorgerðar og geta þannig tekið þátt í umræðunum.

Fyrir útsendingu er hægt að senda spurningar á netfangið sunnak@365.is.


Tengdar fréttir

Kosningaspjall Vísis: Telur það ekki mistök að hafa farið í olíuleit á sínum tíma

Rósa Björk Brynjólfsdóttir oddviti Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi telur að það hafi ekki verið mistök hjá Steingrími J. Sigfússyni þáverandi atvinnuvegaráðherra og flokksbróður sínum að úthluta fyrstu sérleyfunum til olíuleitar á Drekasvæðinu þó að flokkurinn sé í dag andsnúinn olíuleit. Þetta kom fram í Kosningaspjalli Vísis í dag.

Kosningaspjall Vísis: „Við erum með bestu stefnu í heimi“

Oddný Harðardóttir formaður Samfylkingar segist ekki trúa því að stefnumál flokksins séu ástæða lítils fylgis sem hann mælist nú með í skoðanakönnunum því stefna flokksins sé sú besta í heimi. Hún hefur þó ekki skýringar á hinu litlu fylgi en þetta kom fram í viðtali við Oddnýju í Kosningaspjalli Vísis í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×