Innlent

Þorgerður Katrín boðar útspil ráðherra í dag nái deiluaðilar ekki saman

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra. Vísir/anton brink
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsáðherra segir sína línu hafa verið alveg skýra hvað varði aðkomu ráðherra að deilum sjómanna við útgerðina. Hún vilji almennar reglur en ekki sérreglur.

Hún svarar því ekki beint hvort til greina komi að fæðispeningar sjómanna verði skattfrjálsir eins og til umræðu er og þykir umdeilt. Telja sumir að þannig sé útgerðin að koma eigin kostnaði yfir á ríkið og þar með almenning.

Á sama tíma vill þingmaður Sjálfstæðisflokksins að málið verði leyst strax jafnvel þótt farið sé á svig við lög og reglur.

„Við erum að skoða ýmsar leiðir. Ég er að skoða þetta með það í huga að við séum ekki að flækja skattkerfið. Við reynum að nálgast þetta á almennan hátt, skoða sambærilegar stéttir en ekki taka eina út fyrir aðra. Þetta verður einn fyrir alla og allir fyrir einn,“ sagði Þorgerður við fréttastofu að loknum fundum í morgun, annars vegar sameiginlegum fundi efnahags- og viðskiptanefndar og atvinnuveganefndar vegna verkfallsins og hins vegar ríkisstjórnarfundi.

Leita allra leiða í dag

Mikið hefur verið um fundi í röðum sjómannaforystunnar og samningamanna útvegsmanna í sitt hvoru lagi í morgun, en deilendur munu þó vera í stöðugu sambandi. Af máli þeirra mátti ráða fyrir stundu að engin vissi nákvæmlega hvernig málið stæði, en ríkissáttasemjari hafði ekki boðað til fundar nú laust fyrir hádegi.

Líkur á að loðnuflotinn nái í tæka tíð að veiða 190 þúsund tonna kvóta áður en loðnan hrygnir og drepst minnka með hverjum deginum sem líður, en kvótinn myndi skila að minnstakosti 20 milljörðum króna ef hann næðist.

Þorgerður Katrín segir að leitað verði allra leiða til að leysa málið í dag.  

„Ef sjómenn fallast ekki á það sem við erum að segja verðum við að grípa til annarra ráða,“ segir ráðherrann. Það verði að vera í dag.

„Við ætlum ekkert að dvelja við þetta. Við erum búin að sitja við þetta og ég hef komið með ýmsar tillögur sem sjómenn hafa ekki fallist á.“

Aðeins spurning hvernig lausn næst

Hún leggur áherslu á að hún hafi verið í samskiptum við deiluaðila meira og minna allar níu vikurnar sem verkfallið hafi staðið. Síðustu klukkustundir hafi samskiptin verið enn meiri og leitað sé lausna.

„Línan er skýr. Við viljum nálgast þetta á almennan átt. Engar sérreglur. Eftir stendur að það þarf að leysa deiluna, hagsmunir eru miklir og það er mikið í húfi. Við þurfum að fara að ná í auðlindina í sjónum, skapa verðmæti. Við höfum ekki mikinn tíma áður en kemur að ögurstundu.“

Aðeins sé spurning hvernig aðilar nái saman á endanum. Nú séu samskipti á milli deiluaðila og ráðherra og svo verði að koma í ljós hver niðurstaðan verði.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×