FIMMTUDAGUR 23. MAÍ NÝJAST 10:47

Ólafur valinn í úrvalslið Meistaradeildarinnar frá upphafi

SPORT

Þörf fyrir tvö stór hótel á ári

Vísir Viðskipti innlent 26. júní 2012 07:00
Þörf fyrir tvö stór hótel á ári
Verði árleg fjölgun ferðamanna á bilinu fimm til sjö prósent á næstu árum mun gistirýmum í Reykjavík þurfa að fjölga um 180 til 380 á hverju ári. Alls gæti því þurft 3.600 til 7.500 ný herbergi á gististöðum fram til ársins 2030. Þetta kemur fram í drögum að greinargerð fyrir þörf á gistirými í Reykjavík á árunum 2012 til 2030 sem VSÓ Ráðgjöf hefur unnið fyrir skipulags- og byggingarsvið borgarinnar.

Er þá miðað við að ársnýting gistirýma sé á bilinu 44 til 45 prósent. Greinargerðin verður lögð fram í borgarráði á fimmtudag. Gangi þessi spá eftir þarf að byggja eitt til tvö hótel á stærð við Hótel Sögu, sem hefur 203 herbergi, á ári fram til 2030 til að anna eftirspurn.

Fjöldi ferðamanna sem heimsækja Ísland hefur fjórfaldast á tveimur áratugum. Í fyrra fjölgaði þeim um 15,6 prósent frá árinu 2010. Þorri ferðamanna sem hingað til lands kemur dvelur að minnsta kosti hluta ferðar sinnar í Reykjavík. Því ákvað borgin á láta greina þörfina á auknu gistirými næstu tæpu tvo áratugina.

Við vinnslu greinargerðarinnar kortlagði VSÓ Ráðgjöf alla gististaði í virkum rekstri á öllu höfuðborgarsvæðinu ásamt upplýsingum um fjölda rúma, herbergja, upplýsingum um rekstrarleyfi, stjörnugjöf og stærð húsnæðis eftir föngum. Út frá þessum þáttum var lagt mat á stöðu mála í dag og sett fram greining á þörf á gistirými fram til ársins 2030 miðað við einfaldar framreikningsaðferðir.

Helstu niðurstöður eru þær að á höfuðborgarsvæðinu eru alls 182 gististaðir í rekstri. Þar af eru 167 í Reykjavík og 114 þeirra eru í miðborg hennar. Af gististöðum sem eru í rekstri eru 145 gistiheimili eða íbúðahótel en 37 eru hótel eða hostel. Þorri rúma er hins vegar á hótelum borgarinnar, eða 63 prósent þeirra.

Síðustu tvo áratugi hefur ferðamönnum sem koma til Íslands fjölgað um 6,3 prósent að meðaltali á ári. Í greiningu VSÓ segir að ef árleg fjölgun ferðamanna verði á bilinu fimm til sjö prósent fram til ársins 2030 muni þurfa 180 til 380 ný hótelherbergi á ári til að anna þeirri eftirspurn. - þsj / sjá bls. 6

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Viðskipti innlent 23. maí 2013 10:38

Spá óbreyttri verðbólgu í maí

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs lækki um 0,1% milli mánaða. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan vera óbreytt í 3,3% í maí. Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 10:17

Viðskipti með atvinnuhúsnæði 11 milljarðar í apríl

Í apríl s.l. var 55 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 38 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var rétt rúmlega 11 milljarðar króna... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 09:10

Nóbelsverðlaunahafi segir það rétt að gera hlé á ESB viðræðum

Edmund Phelps Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði segir að það sé rétt ákvörðun hjá Íslendingum að gera hlé á aðildarviðræðunum að Evrópusambandinu. Phelps segir að sú ákvörðun muni verja Ísland gegn mörgu... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 08:17

Stofna félag um byggingu hafnar á Dysnesi

Félagið Dysnes Þróunarfélag ehf. verður stofnað í dag til uppbyggingar, markaðsstarfs og kynningar á Dysnesi við Eyjafjörð sem framtíðar hafnarsvæði vegna þjónustu við námu og olíuvinnslu fyrir nor... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 06:00

Telja fyrirheit stjórnarsáttmálans um samráð lofa góðu

Aðilar vinnumarkaðarins segja fyrirheit stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um aukið samráð lofa góðu fyrir komandi kjaraviðræður. Helst séu það fyrirheit um aukið samráð varðandi h... Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 06:00

Stefndi kannast ekkert við þennan Gunnar

Sigurjón Þ. Árnason fullyrðir að stefna slitastjórnar Landsbankans hafi verið birt óviðkomandi manni. Meira
Viðskipti innlent 23. maí 2013 06:00

Svartsýnir á brátt afnám hafta

Forsvarsmenn stærstu lífeyrissjóða landsins eru svartsýnir á að það takist að afnema gjaldeyrishöftin á næstu árum. Einungis um tólf prósent forsvarsmanna lífeyrissjóða telja að þeir fái á ný heimild ... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 15:10

Niðurstaða ESA um gengislánin kemur ekki á óvart

Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja segir að rökstutt álit ESA (Eftirlitsstofnunnar EFTA) um gengislán komi ekki á óvart. Það hafi verið viðbúið að slíkt álit kæmi fram í ljós... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 14:27

Capacent fær vottun hjá IBM

Bandaríska fyrirtækið IBM, sem er leiðandi á sviði viðskiptahugbúnaðar, hefur gefið Capacent vottun sem IBM Premium Business Partner, en það er æðsta vottun sem samstarfsaðilar IBM geta hlotið. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 14:22

Engar líkur á heimild til erlendra fjárfestinga næstu 5 árin

Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna meta nær engar líkur á því að þeim verði veitt heimild til erlendra nýfjárfestinga á næstu fimm árum. Þeir eru aðeins bjartsýnni á að heimildin verði veitt á næstu tíu ár... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 13:37

ESA: Algert bann við gengislánum er brot á EES samningum

Ísland hefur gerst brotlegt við EES samninginn með því að leggja algert bann við veitingu gengistryggðra lána í íslenskum krónum. Þetta er niðurstaða rökstudds álits Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá ... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 13:26

Erlendir ferðamenn sækja í íslensk sumarhús

Mikil aukning hefur orðið á bókunum sumarhúsa hjá erlendum ferðamönnum. 60% viðskiptavina sprotafyrirtækisins Búngaló, sem aðstoðar íslenskar fjölskyldur við að leigja út sumarhús sín, eru erlendir. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 13:04

Erla ráðin sem viðskiptastjóri hjá Brandenburg

Erla Tryggvadóttir hefur verið ráðin í starf viðskiptastjóra hjá auglýsingastofunni Brandenburg. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 12:45

Ekki orð um Íbúðalánasjóð

Ekki er minnst einu orði á Íbúðalánasjóð í stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem kynntur var fyrir hádegi. Í ritinu fjármálastöðugleiki, sem Seðlabankinn gefur út tvisvar á ... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 11:18

FÍB: Álagning á bensíni hefur aukist

Stóru olíufélögin þrjú hækkuðu bensínlítrann um röskar fimm krónur og dísillítrann um röskar fjórar krónur í gær. Álagning á bensínlítrann er orðin þremur krónum hærri frá áramótum, en á sama tímabili... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 11:02

Yfir 15.000 Íslendingar með Alfreð

Alfreð appið fór í loftið 31. janúar sl. og hefur slegið í gegn hjá snjallsímanotendum því núna í maí hafa rúmlega 15 þúsund Íslendingar sótt sér appið og yfir 100 fyrirtæki nýtt sér þessa nýju leið í... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 10:22

Ferðaþjónustan fagnar stækkun á svæði fyrir hvalaskoðun

Samtök ferðaþjónustunnar fagna ákvörðun atvinnu- og nýsköpunarráðherra að stækka það svæði sem hvalaskoðunarfyrirtækin hafa til umráða á Faxaflóa en samtökin hafa lagt mikla áherslu á að banna allar h... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 09:10

Aflaverðmætið stóð nær í stað milli ára í apríl

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,2 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2013 samanborið við 30,3 milljarða á sama tímabili 2012. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um rúmlega 111 millj... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 09:06

Hagstofan mælir 6,6% atvinnuleysi í apríl

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í apríl 2013 að jafnaði 186.800 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 174.400 starfandi og 12.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 82... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 08:38

IFS spáir því að verðbólgan standi í stað

Verðbólguspá IFS greiningar fyrir maí hljóðar upp á 0,1% lækkun verðlags frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir helst tólf mánaða verðbólga óbreytt 3,3%. Verðbólga undanfarna þrjá mánuði á ársgrundvelli ... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 08:06

Björgólfur Thor hefur grætt 18 milljarða á Actavis

Ekkert lát er á hækkunum á gengi hluta í Actavis á markaðinum vestan hafs. Gengið hækkaði um 2,4% í gærkvöldi og er komið yfir 130 dollara á hlut. Þetta þýðir að gengishagnaður Björgólfs Thors Björgól... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 07:30

Vextir verða óbreyttir

Vextir verða óbreyttir út næsta mánuð. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Seðlabankans. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 06:58

Óútskýrðar olíu- og bensínhækkanir

Stóru olíufélögin þrjú hækkuðu bensínlítrann um röskar fimm krónur og dísillítrann um röskar fjórar krónur í gær. Hækkun nemur rúmum 2%. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 06:00

Landsbankamenn krafðir um 1,2 milljarða

Slitastjórn Landsbankans hefur stefnt þremur fyrrverandi starfsmönnum bankans til að greiða þrotabúinu samtals 1,2 milljarða króna vegna hlutabréfakaupa árin 2007 og 2008. Meira
Viðskipti innlent 21. maí 2013 14:29

Kynntu sér kjarasamninga á hinum Norðurlöndunum

Vinnuhópur aðila vinnumarkaðarins kynnti í dag skýrslu um vinnumarkað og skipulag kjarasamninga í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Viðskipti / Viðskipti innlent / Þörf fyrir tvö stór hótel á ári
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000