Innlent

Þórey og blaðamenn DV leita sátta

Atli Ísleifsson skrifar
Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, Jóhann Páll Jóhansson og Jón Bjarki Magnússon, blaðamenn DV.
Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, Jóhann Páll Jóhansson og Jón Bjarki Magnússon, blaðamenn DV.
„Jú, það er reyndar orðið ansi langt síðan Þórey fékk sáttatilboð,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, blaðamaður á DV, í samtali við Vísi. „Hugmyndin var sú að í staðinn fyrir að DV verði háum fjárhæðum í lögmannskostnað mætti gera gott úr þessu leiðindamáli og gefa fé til góðgerðamála í staðinn.“

Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, greindi frá því á Facebook-síðu sinni nú undir kvöld að henni hafi nýlega borist sáttatilboð frá þeim Jóhanni Páli og Jóni Bjarka Magnússyni, einnig blaðamanni á DV. Í byrjun októbermánaðar fól Þórey lögmanni að birta þeim stefnu „vegna ærumeiðandi ummæla og grófra aðdróttana í hennar garð“. Sagðist hún nú fagna því að málinu gæti verið að ljúka með dómssátt.

Jóhann Páll segir það hafa komið sér mjög á óvart að Þórey sé með yfirlýsingar um þessi mál á Facebook. „Ég hélt að sáttaviðræðurnar væru trúnaðarmál meðan þær stæðu yfir. En það hefur mikið gengið á og gagnaðilinn kannski ekki getað setið á sér.“

Jón Bjarki Magnússon tekur undir orð Jóhanns og bendir á að rétt í þessu hafi samtökin Blaðamenn án landamæra verið að senda út mjög harðorða fréttatilkynningu þar sem fjallað er um Þóreyju og refsikröfu hennar gegn þeim Jóhanni Páli. „Áður hafa Alþjóðasamtök blaðamanna og International Modern Media Institute gert slíkt hið sama auk þess sem fjallað var um málið á vef Guardian.“

Hann segir fjölmörg blaðamannasamtök og mannréttindasamtök hafa gagnrýnt íslenska meiðyrðalöggjöf einmitt vegna þeirra refsiákvæða sem vísað er til í stefnu aðstoðarmanns ráðherra. „Málshöfðunin kemur mörgum á óvart í útlöndum, svona í ljósi þess að Þórey er aðstoðarkona þess ráðherra sem fer með mannréttindamál á Íslandi.“

Ekki náðist í Þóreyju við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

Krefst þess að blaðamenn DV verði fangelsaðir

Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, fer fram á að tveir blaðamenn DV verði dæmdir til fangelsisvistar vegna fréttarskrifa um hana í júní, í tengslum við lekamálið svokallaða.

Alþjóðlegu blaðamannasamtökin fordæma kröfu Þóreyjar

"Að opinber starfsmaður sækist eftir því að blaðamenn verði fangelsaðir – eða refsingu af einhverju tagi – fyrir það sem virðist vera heiðarleg mistök gefur til kynna að hlutverk fjölmiðla, sem varðhundur almennings, er ekki virt."

Formaður BÍ: Sorglegt að grípa til þessara ráða

Formaður Blaðamannafélags Íslands furðar sig á stefnu Þóreyjar Vilhjálmsdóttir. Hann segir hana fráleita og að sorglegt sé að hún hafi ákveðið að grípa til þessara ráða.

Þórey stefnir blaðamönnum DV

Aðstoðarmaður innanríkisráðherra hefur falið lögmanni að birta Jóni Bjarka Magnússyni og Jóhanni Páli Jóhannssyni stefnu vegna ærumeiðandi ummæla og grófra aðdróttana í hennar garð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×