Innlent

Þórdís og Tom halda fyrirlestur á Íslandi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þórdís og Tom Stranger hafa áður komið fram á fyrirlestri.
Þórdís og Tom Stranger hafa áður komið fram á fyrirlestri. Skjáskot
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Tom Stranger munu halda fyrirlestur á Íslandi í næstu viku. Bók þeirra, Handan fyrirgefningar, og fyrirlestrar byggðir á bókinni hafa vakið heimsathygli á undanförnum vikum.

Bókin fjallar um samskipti Þórdísar Elvu og Tom eftir að hún hafði samband við hann, mörgum árum eftir að hann nauðgaði henni á Íslandi, þegar hún var sextán ára og hann átján ára.

Í bréfinu lýsti hún ofbeldinu sem hann beitti hana í tilraun til að skila skömminni og rjúfa eigin þögn. Hún bjó sig undir neikvæð viðbrögð en fékk þess í stað skilyrðislausa játningu frá Tom, með ósk um að gera upp fortíðina í sameiningu.

Héldu þau sameiginlegan TED-fyrirlestur um efni bókarinnar sem vakti heimsathygli og hafa þau ferðast víða um heim með fyrirlestur sinn, meðal annars til Ástralíu þar sem Þórdís Elva var gestur í sjónvarpsþættinum Q&A.

Þá var hætt við fyrirhugaðan fyrirlestur þeirra á ráðstefnunni Woman of the World í London um síðustu helgi vegna mótmæla gegn því að Tom, sem játað hefur aðild sína að nauðgun, fengi þar að koma á svið.

Fyrirlestur Þórdísar og Tom fer fram í Salnum í Kópavogin æstkomandi miðvikudag 22. mars kl. 20. Fyrirlesturinn í Salnum er byggður á sögu Þórdísar og Tom ásamt bókinni en fer víðar; inn á hugsjónir þeirra og markmið með því að deila sögu sinni og umræðunni sem þau vona að hún kveiki.


Tengdar fréttir

Þórdís Elva og Stranger ekki lengur á dagskrá

Aðstandendur ráðstefnunnar segjast þar með vera að bregðast við undirskriftasöfnun þar sem rúmlega tvö þúsund mann mótmæltu því að Stranger skyldi fá að vera á hátíðinni.

Vilja ekki að Stranger fái að halda erindi

Rétt rúmlega tvö þúsund undirskriftir hafa safnast í undirskriftasöfnun þar sem þess er krafist að Tom Stranger fái ekki að halda erindi á ráðstefnunni Women of the World sem hefst í Lundúnum í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×