Viðskipti innlent

Þórdís Anna og Ingibjörg nýir forstöðumenn hjá Icelandair

Atli Ísleifsson skrifar
Þórdís Anna Oddsdóttir.
Þórdís Anna Oddsdóttir. Mynd/Icelandair
Þórdís Anna Oddsdóttir og Ingibjörg Lárusdóttir hafa verið ráðnir forstöðumenn hjá Icelandair.

Þórdís Anna hefur verið ráðinn forstöðumaður Onboard Retail and Service (Sala og þjónusta um borð) deildar Icelandair, en Ingbjörg forstöðumaður Cabin Operations (Verkefni og starf áhafna) deildar Icelandair.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að Onboard Retail and Service heyri undir sölu- og markaðssvið félagsins og annast þróun og rekstur alls sölustarfs og þjónustu um borð, þar á meðal Saga Shop Kitchen og Saga Shop Collection.

Þórdís Anna hefur lokið BS prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í iðnaðarverkfræði frá Georgia Institute of Technology.

„Hún starfaði sem sérfræðingur í áhættustýringu hjá Straumi fjárfestingabanka, var ráðgjafi í innkaupastjórnun hjá Statoil Refining Denmark A/S, sinnti rannsóknarvinnu og kennslu í rekstrarverkfræði hjá Denmark Techniske Universitet og nú undanfarin tvö ár verkefnastjóri í rekstrarstýringu Icelandair.

Þórdís Anna er í sambúð með Henning Jónassyni, flugumferðarstjóra og ég á soninn Elías Atlason 4 ára.“

Ingibjörg Lárusdóttir.
Starfið Ingibjargar felur í sér ábyrgð á meginverkefnum deildarinnar sem eru flugöryggismál, ábyrgð á þjálfun flugfreyja og flugþjóna, starfsmannamál flugfreyja og flugþjóna og framkvæmd þjónustu um borð í flugvélum félagsins.

„Ingibjörg lauk BA prófi í lögfræði árið 2012 og meistara- og fullnaðarprófi í lögfræði 2014. Hún starfaði sem lögfræðingur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins um tveggja ára skeið frá janúar 2013-febrúar 2015 þegar hún tók við núverandi starfi sem forstöðumaður hjá Icelandair. Hún er ekki ókunn félaginu, en hún hafði starfað sem flugfreyja árin 1994-2014.

Ingibjörg býr í Garðabæ og á 4 börn,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×