Handbolti

Þorbjörn um Óla Stef: Ekki heppilegasti tíminn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Þorbjörn Jensson gerðist tímabundið aðstoðarþjálfari Vals fyrir tveimur árum.
Þorbjörn Jensson gerðist tímabundið aðstoðarþjálfari Vals fyrir tveimur árum. vísir/valli
Ólafur Stefánsson, þjálfari Vals í Olís-deild karla í handbolta, hefur fengið tímabundið leyfi frá störfum eins og greint var frá fyrr í dag.

Óskar Bjarni Óskarsson, sem stýrði Val til Íslandsmeistaratitils árið 2007, og Jón Kristjánsson, margfaldur Íslandsmeistari sem leikmaður liðsins, stýra liðinu fram að áramótum þegar Ólafur á að snúa aftur.

Þorbjörn Jensson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, tekur brátt við formannsstöðunni hjá handknattleiksdeild Vals, en hann vildi í samtali við Vísi ekki gangast við því að þetta væru skrítnar kringumstæður.

„Ég lít ekki á þetta þannig. Eins og segir í fréttatilkynningunni þá þarf Óli að snúa sér að því að byggja upp sitt fyrirtæki,“ segir Þorbjörn.

„Við sem erum í kringum boltann hjá Val sáum að við gátum leyst þetta á farsælan hátt með Óskari Bjarna og Jóni fyrst hann var á lausu. Þetta hefði vissulega verið erfiðara ef við hefðum ekki haft mann eins og Jón í takinu.“

„Flest lið eru búin að ráða þjálfara og þannig allir búnir að festa sig. Þetta var bara frábært tækifæri til að gefa Óla þetta frí. Við erum nú allir miklir fagmenn sem vinnum að þessu í kringum Val og töldum okkur geta leyst þetta vel.“

Þorbjörn er þrautreyndur þjálfari, en hann gerði Val margsinnis að Íslandsmeisturum og þá stýrði hann íslenska landsliðinu í fimmta sæti á HM í Kumamoto árið 1997. Aðspurður út frá þjálfunarfræðunum hvort þetta sé góður kostur segir Þorbjörn:

„Ég get alveg viðurkennt að þetta er ekki heppilegasti tíminn, en það má alltaf að segja að það sé óheppilegt þegar það þarf að gera eitthvað svona. Þetta eru bara aðstæðurnar sem við stóðum frammi fyrir.“

Þorbjörn segir að Ólafur stefni að því að koma aftur um áramótin, en er einhver varaáætlun ef Ólafur biður um lengra frí?

„Við áváðum bara að taka á þessum hlutum núna. Nú líða þessir mánuðir fram að áramótum og Óli verður auðvitað alltaf til staðar. Hann er ekki að fara neitt. Ég er alveg slakur yfir þessu. Við tökum bara nýja ákvörðun þegar að henni kemur,“ segir Þorbjörn Jensson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×