Innlent

Þórarinn Snorri nýr formaður Ungra jafnaðarmanna

Atli Ísleifsson skrifar
Þórarinn Snorri Sigurgeirsson.
Þórarinn Snorri Sigurgeirsson.
Þórarinn Snorri Sigurgeirsson, 28 ára stjórnmálafræðingur, var kjörinn formaður Ungra jafnaðarmanna á landsþingi hreyfingarinnar fyrr í dag.

Þórarinn Snorri gegndi áður embætti varaformanns Ungra jafnaðarmanna, en tekur nú við formennsku í hreyfingunni af Evu Indriðadóttur.

Hann skipar sjötta sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir komandi þingkosningar sem fram fara 29. október næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×