Lífið

Þóra um Sigmar: „Tímabilið í fyrravor var ömurlegt“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Þóra í pontu er hún bauð sig fram. Hægra megin má sjá Sigmar Guðmundsson.
Þóra í pontu er hún bauð sig fram. Hægra megin má sjá Sigmar Guðmundsson. vísir/valli/villi
Þóra Arnórsdóttir, starfandi ritstjóri Kastljóss og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, prýðir forsíðu MAN Magasín og er í viðtali. Þar ræðir hún meðal annars um tímann í Yale, komandi forsetakosningar, brotthvarf Sigmar Guðmundssonar úr Kastljósinu og margt fleira.

Forsíða júníblaðs MAN Magasínmynd/man magasín
„Ég held það hafi verið rétt hjá honum að segja frá þessu opinberlega,“ segir Þóra meðal annars um áfengisvanda samstarfsmanns síns, Sigmars Guðmundssonar. Sigmar er aðalritstjóri Kastljóss en Þóra leysir hann af hólmi meðan meðferð hans stendur yfir. 

„Tímabilið í fyrravor var ömurlegt, því eins og hann segir sjálfur, þá kemur fólk í neyslu ekki vel fram við þá sem standa því næst. Við Helgi Seljan stóðum ein eftir með þáttinn á herðunum. Ég hef sjaldan verið jafn fegin að komast í sumarfrí og þá erfiðu mánuði.“

Árið 2012 bauð Þóra sig fram gegn sitjandi forseta, Ólafi Ragnari Grímssyni, og hlaut þriðjung atkvæða. Það dugði þó ekki til sigurs í kosningunum. Þegar niðurstöður kosninganna lágu fyrir tilkynnti hún að hún myndi ekki bjóða sig aftur fram til forseta. Sú ákvörðun hefur ekki breyst.

„Hugurinn stefnir í aðrar áttir og ég hef ekki verið að nýta undanfarin ár til að undirbúa mig fyrir framboð aftur. Það er bara ekki þannig sem minn karakter virkar. Þetta reyndist ekki vera eitt af því sem ég mun gera í lífinu.“

Í MAN Magasín er einnig rætt við konur í kraftlyftingum og lesa má úttektir um höfuðhögg í íþróttum og hugverkastuld.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×