Íslenski boltinn

Þóra hélt aftur hreinu og Fylkiskonur upp í 2. sætið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fylkiskonur hafa komið skemmtilega á óvart.
Fylkiskonur hafa komið skemmtilega á óvart. vísir/valli
Fylkir er komið upp í annað sæti Pepsi-deildar kvenna í fótbolta eftir 1-0 sigur á ÍA í uppgjöri nýliðanna í 10. umferð deildarinnar í kvöld.

 

Lucy Gildein skoraði eina mark leiksins á 43. mínútu leiksins en þetta var annar 1-0 sigur Fylkiskvenna í röð.

Landsliðsmarkvörðurinn Þóra Björg Helgadóttir lék þarna sinn annan leik með liðinu og hefur hún haldið hreinu í fyrstu tveimur leikjum sínum.

Fylkir hefur eins stigs forskot á Breiðablik en Blikakonur eiga leiki inni á morgun á móti toppliði Stjörnunnar.

Fylkir sem er í nýliði í deildinni hefur náð í 20 stig í fyrstu tíu leikjum sínum og haldið marki sínu hreinu í átta af þessum tíu leikjum.

Fyrr í dag vann Selfoss 3-0 sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum þar sem Erna Guðjónsdóttir skoraði tvö mörk og Celeste Boureille eitt. Erna endaði síðan leikinn á því að fá rauða spjaldið. Selfossliðið er í 4. sæti með jafnmörg stig og Breiðablik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×