Fótbolti

Þóra best enda lýgur tölfræðin ekki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þóra og félagar fögnuðu meistaratitlinum úti í skógi að loknum lokaleik tímabilsins sem fram fór í námunda við skóginn.
Þóra og félagar fögnuðu meistaratitlinum úti í skógi að loknum lokaleik tímabilsins sem fram fór í námunda við skóginn. Mynd/Twitter-síða Þóra
Leikmenn sænsku úrvalsdeildarinnar í Svíþjóð völdu Þóru Björgu Helgadóttur besta markvörð deildarinnar á nýafstöðuna tímabili.

Þóra hélt hreinu í 14 af 21 leik LdB Malmö í deildinni sem er ótrúlegur árangur. Aðeins í sjö leikjum eða um 33 prósent leikjanna þurfti hún að sækja boltann í netið sitt.

Þóra var einnig valin besti markvörður deildarinnar af lesendum Damfotboll.com og hlaut þar 38 prósent atkvæða. Á verðlaunahátíð sænska knattspyrnusambandsins eftir viku mun koma í ljós hvort Þóra hljóti enn ein verðlaunin fyrir frammistöðu sína.

Þóra hefur hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína undanfarin ár. Samspil hennar og varnarinnar virðist hins vegar hafa stórbatnað á milli tímabila. Þannig þurfti Þóra „aðeins“ að verja 54 skot í deildinni í ár samanborið við 94 í fyrra.

Þórá á eitt ár eftir af samningi sínum við LdB Malmö. Tímabilinu er þó ekki alveg lokið. Framundan eru tveir leikir við Evrópumeistara Wolfsburg í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fyrri leikurinn verður í Svíþjóð á laugardag og sá síðari í Þýskalandi fjórum dögum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×