Lífið

Thomas Lundin telur að Svala eigi mesta möguleika í Kíev

Atli Ísleifsson skrifar
Thomas Lundin vakti mikla athygli í þáttum sænska ríkissjónvarpsins (SVT) fyrir nokkrum árum þar sem fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum komu saman til að hlusta á og ræða framlögin í söngvakeppninni.
Thomas Lundin vakti mikla athygli í þáttum sænska ríkissjónvarpsins (SVT) fyrir nokkrum árum þar sem fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum komu saman til að hlusta á og ræða framlögin í söngvakeppninni.
Finnski söngvarinn og Eurovision-sérfræðingurinn Thomas Lundin telur að Ísland muni eigi mesta möguleika á að komast upp úr undanúrslitum Eurovision-keppninnar í Kiev í maí ef landsmenn myndu velja stuðlag sem framlag sitt á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar næsta laugardag.

Thomas vakti mikla athygli í þáttum sænska ríkissjónvarpsins (SVT) fyrir nokkrum árum þar sem fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum komu saman til að hlusta á og ræða framlögin í söngvakeppninni. Eiríkur Hauksson var fulltrúi Íslendinga í þáttunum.

Svala, Aron og Hildur í uppáhaldi

Thomas segir í samtali við Vísi að eftir fyrstu hlustun telji hann gæði íslensku laganna vera mikil – eins og alltaf. „Góðir listamenn og góð lög. Þið komið til með að fá flott úrslitakvöld. Uppáhaldslögin mín eru lög Svölu Björgvinsdóttur, Arons Brink og Hildar Kristínar Stefánsdóttur. Mér líkar líka við fallega ballöðu Arnars Jónssonar og Rakelar Pálsdóttur en minnir ansi mikið á „Blackbird“, lagið sem keppir fyrir hönd Finnlands í Kíev í maí.“

Hann bendir á að mörg lönd hafa þegar valið hvaða lög munu keppa í keppninni í maí og að ljóst sé að það verði mikið um ballöður í ár. „Stuðlag frá Íslandi myndi því auka breiddina í Eurovision-keppninni 2017 og örugglega auka möguleikana á að komast í úrslitin og gera vel.“

Grípandi viðlag

Thomas telur að Svala Björgvins myndi eiga mesta möguleika þegar kæmi að stóru stundinni Úkraínu. „Gott lag með sterkt viðlag sem grípur mann við fyrstu hlustun. En það er sama hvaða lag þið veljið – framlag Íslands verður gott í ár. Öll sjö lögin eru góð, þó að einhver gætu átt á hættu að standa ekki nógu mikið upp úr á stóra sviðinu í Kíev.“

Ísland keppnir á fyrra undanúrslitakvöldinu þriðjudaginn 9. maí ásamt Albaníu, Ástralíu, Aserbaídsjan, Belgíu, Finnlandi, Georgíu, Svartfjallalandi, Portúgal, Svíþjóð, Armeníu, Kýpur, Tékklandi, Grikklandi, Lettlandi, Moldóvu, Póllandi og Slóveníu. Seinna undanúrslitakvöldið fer fram 11. maí og úrslitakvöldið laugardaginn 13. maí.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×