Tónlist

Þokkafullt tónlistarmyndband Gus Gus

Baldvin Þormóðsson skrifar
Tónlistarmyndbandið er með þokkafullu sniði.
Tónlistarmyndbandið er með þokkafullu sniði. vísir/börkursigþórsson
Lagið fjallar um þessa yfirdrifnu sjálfsánægju og kynferðislegu orku sem leiðir þig í grimman eltingarleik við ekkert, segir Högni Egilsson, tónlistarmaður og meðlimur Gus Gus en hljómsveitin sendi nýverið frá sér nýtt tónlistarmyndband við lagið Obnoxiously Sexual.

Við lifum í þessum hýper-sexúal heimi sem hlaðinn er sjálfsdýrkunar og þessi nýji kúltúr sem fjallar um ímynd mannsins og allt sem snýr að þessu selfie-kúltúr, segir Högni.

Þessi tilfinning þegar tvær manneskjur koma saman og hafa þennan styrk sem gefur svo mikinn kraft að þú stígur til himna, ferð yfir fjöllin og það er ekkert að fara að stoppa þig og þú berð þig á þessum svokallaða hégóma.

Tónlistarmyndbandið er í takt við lagið, lýsir Högni, en það er Börkur Sigþórsson sem leikstýrði myndbandinu.

„Þetta er alveg þokkafyllt, þetta er svolítið spennandi myndband,“ segir tónlistarmaðurinn en myndbandið má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×