Ţjófar sakleysisins

Fréttablađiđ Fastir pennar 01. september 2010 06:00
Ţjófar sakleysisins
Jónína Michaelsdóttir skrifar:

Sá sem gengur inn á heimili vinar, sér þar dýrgrip sem hann ágirnist, stingur honum inn á sig þegar hann er einn í stofunni og fer með hann heim, er þjófur.

Hann réttlætir það með sjálfum sér með því að hann sé svo veikur fyrir listaverkum, og enginn hafi séð til hans. Sá sem beitir barn kynferðislegri áreitni og ofbeldi, er líka þjófur. Hann rænir barnið sakleysi bernskunnar. Brýtur niður sjálfsöryggi þess og brenglar sjálfsmat sem er í mótun. Hægt er að endur­heimta dýrgrip sem var stolið, en ekki heiðríkju bernskunnar. Þegar þjófurinn er foreldri eða náinn ættingi lokast öll sund í vitund barnsins. Hverjum er treystandi? Hvert getur það snúið sér?

Sama gildir um unglinga sem verða fyrir slíkri reynslu á þröskuldi fullorðinsáranna. Heimurinn hrynur. Með árunum geta þeir byggt sig upp aftur með stuðningi ástvina og fagmanna, en þetta fyrnist ekki. Algengt mun vera að börn og unglingar gangi með þessa sáru reynslu í brjóstinu árum saman án þess að tala um hana við nokkurn mann. Vita ekki hvaða afleiðingar það gæti haft, ekki síst þegar þjófurinn er á heimilinu. Snúa þessu jafnvel að sjálfum sér og fyllast sjálfsfyrirlitningu.
Glöggir kennarar og aðstandendur taka kannski eftir breytingu á þeim, og átta sig á að ekki er allt með felldu. Foreldrar eru hins vegar oft grandalausir. Góð og glöggskyn kona fékk áfall þegar hún komst að því að maðurinn hennar hafði misnotað dóttur þeirra. Hún fór frá honum samdægurs. Sagðist eiga erfitt með að fyrirgefa sjálfri sér að hafa ekki áttað sig á því sem fram fór á heimilinu. Hún yrði að lifa með því, en það myndi hvíla á henni það sem eftir væri.

Vinur minn sem ólst upp úti á landi man glöggt eftir fjölskyldu sem skar sig úr í byggðarlaginu. Faðirinn var stæðilegur maður og stundum ræðinn, en fjölskylda hans blandaði ekki geði við fólk í þorpinu. Börnin tóku ekki þátt í leikjum með öðrum krökkum. Stóðu oft álengdar álút og feimnisleg, gjarnan með krosslagðar hendur á brjóstinu. Konan var uppburðarlítil og forðaðist að líta á fólk á förnum vegi þegar hún fór hjá.
Þetta var dálítil ráðgáta fyrir vin minn á meðan hann var að vaxa úr grasi, en áratugum síðar fékk hann skýringu. Í ljós kom að faðirinn hafi kúgað alla fjölskylduna og misnotað börn sín miskunnarlaust árum saman.






Sannleikurinn gerir mann frjálsan

Breyskur kirkjuleiðtogi sem lengst af naut óskoraðrar virðingar og vinsælda varpar nú rýrð á þjóðkirkjuna og margir segja sig úr henni vegna málsins. Konurnar sem kröfðust viðurkenningar á breyskleika biskupsins eiga heiður skilinn, að ekki sé talað um dóttur hans. Það er tilfinningalegt afrek, sem mun gera öðrum fórnarlömbum auðveldara að stíga fram. Enda boðar kirkjan að sannleikurinn geri mann frjálsan, og það er mikið til í því.

Það er hins vegar misskilningur að viðhafnarumbúðir geri menn almennt að heiðursmönnum á þessu sviði. Um það vitnar sagan. Biskupinn er ekkert einsdæmi.

Hvorki löng skólaganga né gott uppeldi tryggir virðingu fyrir persónuhelgi annarrar manneskju. Því miður. Einstaklingar úr þeim stéttum sem við treystum á, prestar, læknar, kennarar og lögregla geta brugðist í þessum efnum, eins og hverjir aðrir. Hempa, einkennisbúningur og læknasloppur eru aðeins umbúðir. Þau eru bara manneskjur eins og við hin. En það breytir ekki því að það er áfall fyrir einstakling þegar þessar stoðir samfélagsins bregðast alvarlega trausti. En sárast af öllu er auðvitað þegar fjölskyldan bregst.






Breyttir tímar

Ekki eru margir mannsaldrar síðan stór hluti þjóðarinnar bjó á afskekktum bæjum þar sem bóndinn átti kannski bæði börn með húsfreyjunni og vinnustúlkunum.

Sjálfsagt að nota kvenmannskroppana úr því þeir voru þarna. Minnisstæð er unglingstúlkan sem var uppi í hlíð á ferð milli bæja þegar karl kom gangandi eftir veginum. Um leið og hann kom auga á hana, tók hann á rás upp hlíðina. Hún vissi hvað vakti fyrir honum og hljóp hann af sér. Sagðist aldrei ganga ein á veginum, því að körlum hefði þótt sjálfsagt að grípa til kvenna og nota þær, rétt eins og þær væru húsdýr.

Nú eru aðrir tímar. Réttindabarátta kvenna og almenn þátttaka í atvinnulífi hefur styrkt sjálfsmynd þeirra. Þær geta verið eigin herrar í sínum málum og standa jafnt körlum í hvaða stöðu sem er. Þegar brotið er alvarlega á þeim verður því mætt.





Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niđurstöđur skođanakönnunar Fréttablađsins og Stöđvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvćđing er mesta hćttan

Ögmundi Jónassyni tókst međ haldbćrum rökum í Kastljóssţćtti í vikunni ađ sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar ţjóđir eiga fleiri eđa aflmeiri bíla miđađ viđ fólksfjölda en Íslendingar. Ţađ á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gćti ţótt mikil eftirsjá ađ öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og ţar um landiđ...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigđ kćrasta vill tilbreytingu

Öll erum viđ međ okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfrćđing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstađa um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaafliđ Samstađa, undir forystu Lilju Mósesdóttur alţingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Ţađ er undur stutt síđan máliđ sýndist afgreitt. Ţetta međ markađina og ríkiđ. Markađir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orđiđ í forsjármálum barna á 20 árum. Áriđ 1992 varđ fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóđirnir platađir

Forsvarsmenn lífeyrissjóđa keppast nú um ađ túlka niđurstöđu nefndar sem gerđi úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hćstaréttar

Lög eiga ađ tryggja sanngjarna málsmeđferđ, réttlćti í samskiptum fólks og velferđ. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Ţriđjungur ţingheims, ţingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapađ af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóđina hefur leitt í ljós ađ á tveimur árum kringum bankahruniđ tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga ţarf ađ fćrum leiđum

Skuldavandi heimila á ađ stórum hluta rót sína í ţví furđulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstćđrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóđanna inniheldur harđa gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbrćđralag

Kópavogur hefur dregiđ ađ sér nokkra athygli vegna viđrćđna um myndun nýs meirihluta í bćj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viđbúin nýjum hćttum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í nćsta nágrenni viđ Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ćtlađ samţykki

Nokkrir ţingmenn vilja breyta lögum á ţann hátt ađ líffćri verđi tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverđ umrćđa fór fram um EES-samninginn á Alţingi fyrr í vikunni. Tilefniđ va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiđari leiđ til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grćdd í Íslendinga ár hvert. Vegna ţessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárađ uppgjör

Ţingmenn úr ađ minnsta kosti ţremur flokkum, auk óháđra, munu í vikunni leggja fram á Alţi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldiđ

Sagnfrćđingar tala um ađ stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstćđisstjórnmál af hólmi áriđ 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnađur krónu

Samkeppniseftirlitiđ birti í síđustu viku skýrslu sína um verđţróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Ţjófar sakleysisins