Viðskipti erlent

Þjóðverjar segja ekkert tilefni til áframhaldandi viðræðna

Samúel Karl Ólason skrifar
Alexis Tsipras og Angela Merkel.
Alexis Tsipras og Angela Merkel. Vísir/EPA
Fjármálaráðherra Evrópu eru myrkir í máli eftir að ákvörðun stjórnvalda í Grikklandi um þjóðaratkvæðagreiðslu var tilkynnt í gær. Atkvæðagreiðslan á að fara fram þann 5. júlí, en nú á þriðjudaginn þarf Grikkland að greiða rúmlega einn og hálfan milljarð til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Án samkomulags um neyðaraðstoð er útlit fyrir að Grikkland verði gjaldþrota. Alxesis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, hefur beðið um frest á gjalddaganum en ekki er gott útlit fyrir að sú beiðni verði samþykkt.

„Það er ekki grundvöllur fyrir áframhaldandi viðræðum,“ segir Wolfgang Schaeuble, fjármálaráðherra Þýskalands. „Augljóslega getum við ekki útilokað óvænt atvik í Grikklandi, svo þar er alltaf hægt að halda í vonina. Hins vegar sér enginn af kollegum mínum sem ég hef rætt við, hvaða leiðir hægt sé að fara núna.“

„Grikkland hefur yfirgefið samningaborðið og nú erum við í þeirri stöðu að á þriðjudaginn mun aðstoðaráætlunin enda, þar sem viðræður eiga sér ekki stað.“

Fjármálaráðherra Finnlands sló á svipaða strengi og sagði þetta hugsanlega vera mjög sorglegan dag.

Stjórnarandstaðan í Grikklandi segir að afstaða Syriza flokksins hafi leitt Grikkland í glötun. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Antonis Samaras, segir að þjóðaratkvæðagreiðslan sé í raun um hvort að Grikklandi ætli að vera í Evrópusambandinu.

Uppfært 16:20

Fjármálaráðherra evruríkjana hafa neitað að framlengja gjalddagan lánsins til AGS fram yfir atkvæðagreiðsluna. Beiðnin fjallaði einnig um framhald á neyðaraðstoð, en Seðlabanki Evrópu mun ákveða hvort að hann muni halda áfram að útvega bankakerfi Grikklands neyðaraðstoð.

Yanis Varoufakis, fjármálaráðherra Grikklands, segir að ákvörðun evruríkjanna muni draga úr trúverðugleika þeirra. Varoufakis sagði að þeir hefðu eingöngu beðið um nokkra daga, en talsmaður evruríkjanna sagði að Grikkir hefðu beðið um frest í einn mánuð.

Uppfært 17:00

Varoufakis segir að enn sé verið að vinna að samkomulagi og hann vill ekki ræða hvað gerist takist ekki að semja um neyðarhjálp fyrir Grikki. Hann segir að komist deiluaðilar að samkomulagi muni ríkisstjórnin hvetja Grikki til að samþykkja það í þjóðaratkvæðagreiðslunni 5. júlí.

Ennfremur sagði hann að það að bola Grikkjum úr evrusamstarfinu færi gegn grundvallarsamningi ESB.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×